fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fréttir

Frelsissvipting og kynferðislegar misþyrmingar í Vatnagörðum – Var skipað að kúka á gólfið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 14:30

Vatnagarðar 18. Mynd: já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtaka er í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í stóru sakamáli þar sem þrír menn eru ákærðir. Ákært er fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots, peningaþvætti sem varðar hátt í 30 milljónum króna og hrikalegar misþyrmingar gegn manni í húsnæði að Vatnagörðum 18 í lok janúar árið 2023.

Af einhverjum ástæðum njóta sakborningarnir þrír nafnleyndar í ákæru héraðssaksóknara sem DV hefur undir höndum. Einn þeirra er kallaður X og er ákærður fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots. Er hann sagður hafa föstudaginn 4. júní árið 2021 sótt og reynt að taka við rúmlega hálfu kílói af metamfetamín-kristöllum, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru falin í gjafapakka sem innihélt skjalamöppu þar sem efnunum hafði verið komið fyrir. Var X skráður móttakandi fyrir sendingunni. Gjafapakkinn kom hingað til lands með
póstsendingu DHL frá Malawi fimmtudaginn 3. júní 2021. Lögreglan lagði hald á sendinguna og fjarlægði efnin úr skjalamöppunni. Föstudaginn 4. júní 2021 hafði lögregla samband símleiðis við X, undir þeim formerkjum að um væri að ræða starfsmann DHL, í því skyni að mæla sér mót við X til þess að afhenda sendinguna. Síðar um daginn hitti X  lögreglumann, klæddan sem starfsmann DHL, við bensínstöð N1 við Hringbraut 12, Reykjavík, þar sem hann afhenti X sendinguna. Í kjölfar móttökunnar var X handtekinn af lögreglu er hann var við það að opna pakkann.

Hann er einnig ákærður fyrir að hafa undir höndum lyfseðilsskyld fíknilyf. Enn fremur er hann ákærður fyrir peningaþvætti á fyrri hluta árs 2021, fyrir að hafa tekið við allt að 27.996.579 krónum fyrir ólöglega sölu og dreifingu á lyfjum. Er sá ákæruliður reistur á rannsókn lögreglu á bankareikningi ákærða.

Tóku frelsisviptingu og pyntingar upp á myndband

X og Y eru síðan ákærðir fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot með því að hafa í sameiningu staðið að því að svipta mann frelsi í um tvær klukkustundir og tuttugu mínútur í húsnæði að Vatnagörðum 18. Var þetta gert í ávinningsskyni en þeir voru að reyna að kúga fé út úr þolandanum. Í ákæru eru þessu lýst svo:

„Er A kom á vettvang klukkan 02:14 fylgdi X honum inn í herbergi þar sem X hafði skömmu áður sett upp myndavél í því skyni að taka frelsissviptinguna upp. Er A gekk inn í herbergið var Y í felum á bak við hurðina sem lá inn í herbergið með límbandsrúllu í hönd, er A áttaði sig á því að Y biði hans í herberginu reyndi hann að komast út úr herberginu en var meinuð útganga. Í framhaldinu kýldi Y hann ítrekað með krepptum hnefa í höfuð og vinstri síðu á meðan X stóð hjá með límbandsrúlluna í hendinni. Því næst kom Y A fyrir á stól sem hann og X höfðu komið fyrir í herberginu, gegnt myndbandsupptökuvélinni, og setti límband fyrir munn A og gerði í framhaldinu tilraun til þess að binda A við stólinn með límbandinu. Því næst afklæddi Y A þannig að hann var klæddur nærbuxum einum fata og á tímabili var hann alls nakinn líkt og nánar er rakið í tölulið II.-2. X og Y bundu A loks með límbandi og dragböndum á höndum og fótum
auk þess sem þeir settu límband fyrir munn A og skildu hann eftir í herberginu. A tókst skömmu síðar að komast undan Y og X, eða um klukkan 04:10, og út úr húsnæðinu að Vatnagörðum 18. Hljóp hann þaðan á nærbuxum einum klæða áleiðis að Vatnagörðum 22 þar sem hann reyndi að vekja athygli á sér og kalla eftir aðstoð með því að brjóta rúðu við inngang að Vatnagörðum 22. Klukkan 04:11 komu Y og X akandi á bifreiðinni […] frá Vatnagörðum 18 áleiðis að Vatnagörðum 22 þar sem Y steig út úr bifreiðinni og færði A með valdi inn í aftursæti bifreiðarinnar vinstra megin og fylgdi sjálfur á eftir. Því næst óku Y og X aftur að Vatnagörðum 18 þar sem þeir fóru með A inn á baðherbergi þar sem A var þrifinn og honum í framhaldi sleppt um klukkan 04:36.“

Þvingaður úr fötunum

Y er síðan ákærður fyrir stórfellda líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung fyrir það ofbeldi sem hann beitti brotaþola í herberginu á Vatnagörðum. Hann er meðal annars sakaður um að reka rör í klof brotaþolans, skipa honum að kúka á gólfið og dansa nakinn. Hlaut brotaþoli útbreidda áverka víðs vegar um líkamann af ofbeldinu en hann var m.a. ítrekað laminn með röri. Atburðarásinni er lýst svo í ákæru:

„Á hendur ákærða Y fyrir stórfellda líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung gagnvart A meðan á ofangreindri frelsissviptingunni stóð með því að beita A margvíslegu ofbeldi og hótunum um ofbeldi, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir A um að hann léti af háttsemi sinni, meðal annars með eftirfarandi hætti, með því að klæða A úr fötunum gegn vilja hans og þvinga A, með ofbeldi og hótunum um frekara ofbeldi til þess að klæða sig úr fötunum þannig að hann var einungis klæddur nærfötum og sokkum, slá hann ítrekað með flötum lófa og krepptum hnefa í höfuð og líkama og hóta honum ítrekað að slá hann með flötum lófa og krepptum hnefa, taka hann ítrekað hálstaki, nota límband og dragbönd til þess að binda A, slá hann með belti í höfuðið, veita honum hnéspörk í líkamann, meðal annars í kviðinn, reka brot úr spegli í síðuna á honum, stíga á magann á honum og hóta því að reka brotið í hann, gefa honum tvívegis olnbogaskot í höfuð hans, taka niður um sig buxurnar og reka rassinn á sér í andlit A og segja við hann „sleiktu þetta“ og „kysstann“, draga brot úr spegli eftir baki hans, hóta að beita hann ofbeldi með kúluhamri, slá hann í líkamann og pota í líkama hans með röri meðal annars í höfuðið og hóta því að beita rörinu frekar gegn honum, þvinga hann til þess að klæða sig úr nærbuxunum þannig að hann var nakinn og reka rörið í klofið á honum í tvígang þar sem hann sat í hnipri og króaður af í einu horni herbergisins, láta hann klæða sig úr nærbuxunum og í framhaldinu þvinga hann til að dansa nakinn og segja honum ítrekað að kúka á gólfið á meðan hann hellti yfir hann vökva úr dós og í framhaldinu taka brot úr spegli og draga eftir baki hans á meðan A bað hann um að hætta, hafa á nýjan leik tekið niður um sig buxurnar og rekið rassinn á sér í andlit A, þvinga A til að taka niður um sig nærbuxurnar sínar og snúa með rassinn í átt að myndavélinni sem tók upp atburðarásina. Skömmu síðar komst A úr herberginu og loks úr húsnæðinu að Vatnagörðum 18, hljóp hann áleiðis að Vatnagörðum 22 þar sem ákærðu X og Y handsömuðu hann skömmu síðar. Við Vatnagarða 22 tók ákærði Y í A og dró hann að bifreiðinni […] þar sem hann færði A með valdi í aftursæti bifreiðarinnar þar sem hann skar A með eggvopni í aftanverðan hægri upphandlegg hans. Voru afleiðingarnar af háttsemi Y þær að A hlaut útbreidda áverka víðs vegar um líkamann, á aftanverðum hægri upphandlegg hlaut hann fimmtán sentimetra skurð sem náði inn í þríhöfða með virkri slagæðarblæðingu, mikla bólgu á vinstri vör og á andliti vinstra megin, marbletti kringum vinstra auga og rispur á hálsi hægra megin, um það bil tuttugu sentimetra rispu á vinstri síðu, litla skurði á hægri olnboga og hægri framhandlegg og brot á ristarbeinum.“

Rak fótinn í rassinn

Þriðji maðurinn, Z, er síðan ákærður fyrir líkamsárás, hótanir, kynferðislega áreitni og fyrir að hafa látið fyrir farast að koma brotaþola til hjálpar á meðan frelsissviptingunni stóð. Hafi hann rekið hægri fót sinn í rassinn á brotaþola þar sem Y hélt honum niðri á fjórum fótum eftir að hann hafði tekið niður um hann nærbuxurnar. Því næst hafi Z staðið ógnandi yfir brotaþola og kýlt hann einu sinni með krepptum hnefa í vinstri öxl og svo ýtt við honum í nokkur skipti með krepptum hnefa. Hann hafi síðan yfirgefið herbergið án þess að gera nokkrum manni viðvart um frelsissviptinguna þannig að hægt yrði að koma brotaþola til hjálpar.

Héraðssaksóknari krefst þess að hinir ákærðu verði dæmdir til refsingar en brotaþolinn krefast skaðabóta að fjárhæð fimm milljónir króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“

Vilja stoppa áfengissölu á íþróttaviðburðum – „Fyrirmyndir í stúkunni séu líka til fyrirmyndar“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

„Í morgun varð mannbjörg“

„Í morgun varð mannbjörg“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum

Erfið færð í morgunsárið en á morgun tekur alvaran við – Asahláka og úrhellisrigning í kortunum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir

Samfylkingin vill herbergi Sjálfstæðisflokksins en hann vill alls ekki gefa það eftir