Ruben Amorim, stjóri Manchester United, og Marcus Rashford, leikmaður liðsins, talast ekki lengur við. Þetta kemur fram í Guardian.
Rashford hefur verið úti í kuldanum á Old Trafford frá því fljótlega eftir að Amorim tók við síðla hausts. Vill hann ólmur komast burt í þessum mánuði, en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.
Amorim skaut hressilega á Rashford þegar hann var spurður út í leikmanninn á dögunum. Sagði hann að hann myndi frekar nota 63 ára gamlan markmannsþjálfara sinn inni á vellinum í stað leikmanna sem leggja ekki á sig það sem til þarf.
Nú er samband Rashford og Amorim svo verra en nokkru sinni fyrr og sem fyrr segir talast þeir ekki við.