Ruben Amorim, stjóri Manchester United, er óánægður með danska framherjann Rasmus Hojlund og gæti félagið íhugað að selja hann.
Talksport heldur þessu fram, en Hojlund hefur verið slakur á þessari leiktíð og er aðeins kominn með tvö mörk í ensku úrvalsdeildinni. Þá hefur hann ekki skorað í ellefu leikjum í röð.
Þó Hojlund sé aðeins 21 árs gamall og hann hafi verið keyptur dýrum dómum frá Atalanta fyrir síðustu leiktíð er ekki mikil þolinmæði eftir gagnvart leikmanninum samkvæmt þessum fréttum.
Bæði Napoli og Juventus eru sögð áhugasöm um að fá leikmanninn aftur til Ítalíu.