Þýska stórliðið Dortmund fundaði með Ralf Rangnick, fyrrum stjóra Manchester United og nú landsliðsþjálfara Austurríkis, í Salzburg í gær.
Frá þessu greinir Florian Plettenberg hjá Sky Sports í Þýskalandi, en Dortmund er í stjóraleit í kjölfar þess að Nuri Sahin var látinn fara.
Fulltrúar Dortmund ræddu við Rangnick um að taka við strax, þó hann sé í starfinu fyrir Austurríki, en það kemur einnig til greina að ráða hann í sumar. Rangnick er með samning við austurríska knattspyrnusambandið út þetta ár.
Plettenberg segir ólíklegra sem stendur að Rangnick samþykki tilboðið og horfir Dortmund einnig á fleiri kosti. Má þar nefnda Niko Kovac, fyrrum stjóra Bayern Munchen, Monaco og fleiri liða.
🚨⚫️🟡 EXCL | Yesterday in Salzburg, there was a secret meeting between #BVB executives and Ralf #Rangnick!
Borussia Dortmund explored whether Rangnick could take over the head coach position immediately. He is also considered a candidate for the summer. Rangnick’s contract as… pic.twitter.com/V2BYylByBH
— Florian Plettenberg (@Plettigoal) January 28, 2025