fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Kynning

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 14:18

PAX fataskápar bjóða upp á ótal möguleika.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækjaþjónusta IKEA sérhæfir sig í þjónustu við fyrirtæki af ýmsum stærðum og gerðum. Verkefnin eru fjölbreytt og geta til dæmis falist í því að innrétta verslun eða hótel, gera endurbætur á skrifstofurými eða hafa umsjón með stærri verkefnum fyrir stofnanir, fyrirtæki eða fjölbýlishús. Þjónustan er ókeypis og er hugsuð til að einfalda utanumhald og lágmarka umstang.

Nýbyggingar, íbúðabyggingar og stærri verkefni

Í þeim tilfellum þar sem innrétta þarf ákveðinn fjölda íbúða, svo sem fyrir verktaka sem eru að koma upp nýbyggingum, hafa sérstakir ráðgjafar í Fyrirtækjaþjónustunni yfirumsjón með verkefninu í samvinnu við verkefnastjóra. Þjónustan snýst aðallega um að auðvelda umstang og spara dýrmætan tíma og þar með peninga. Í IKEA fæst úrval af vörum á hagstæðu verði, og ef panta þarf í magni getur starfsfólk IKEA séð um að sérpanta vörur. Breitt vöruúrvalið auðveldar breytingar síðar meir, eða ef það þarf að bæta einhverju við, til dæmis að skipta út eldhúsframhliðum eða breyta innvolsi í skápum. Ráðgjafarnir hafa góða þekkingu á vöruúrvali IKEA og þjónustu ásamt reynslu af því að vinna að fjölbreyttum verkefnum við að innrétta hin ólíkustu rými.

Ingvi Þór Markússon og Dofri Örn Guðlaugsson eru hluti af teymi Fyrirtækjaþjónustu IKEA.           

Hvernig fer samstarfið fram?  

Í deildinni starfa um tíu fyrirtækjaráðgjafar sem mynda gott teymi. Dofri og Ingvi sjá að mestu um stærri verkefni, svo sem innréttingu nýbygginga, og eru þá í sambandi við verkefnastjóra til að sjá um að allt gangi smurt fyrir sig frá upphafi til enda.

Þegar starfsfólk Fyrirtækjaþjónustunnar þjónustar verktaka við að innrétta íbúðir er byrjað á að þarfagreina verkið hvað varðar verðstiga, útlit og notagildi. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar leggja til skipulagningu innan hvers rýmis og hentugar vörur. Samskiptin fara öll í gegnum Fyrirtækjaþjónustuna sem gerir þjónustuna persónulegri. Því næst gerir ráðgjafi pöntun sem miðast þá af áætluðum afhendingartíma verksins. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar eru til staðar í afhendingarferlinu, enda með góða yfirsýn og reynslu, og ef þörf er á flutningi út á land er unnið að því að finna sem hagkvæmasta lausn. Ráðgjafarnir geta mælt með aðila í uppsetningu eða sérsmíði IKEA innréttinga, ef þörf er á.

Fyrirtækjaþjónustan hefur fengið góð viðbrögð og meðmæli með þjónustu fyrir verktaka, enda er áhersla lögð á að mæta þörfum viðskiptavinarins eins vel og unnt er.

Með METOD eldhúseiningum getur þú myndað þúsundir ólíkra samsetninga.

IKEA vörur í Svansvottað húsnæði

Ef innrétta á Svansvottað húsnæði getur Fyrirtækjaþjónustan aðstoðað, því margar IKEA vörur eru samþykktar til notkunar í Svansvottað húsnæði þó að þær hafi ekki hlotið vottunina sem slíka. Hugmyndafræði IKEA er sú að vörumerkið sé gæðamerki út af fyrir sig, en allar vörur IKEA fara í gegnum strangt gæða- og öryggisferli. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar geta ráðlagt þér hvaða vörur eru þegar samþykktar og jafnvel óskað eftir að vöru sé bætt á listann, í samráði við Umhverfisstofnun.

Lítið baðherbergi eða stórt? Þú finnur það sem hentar í IKEA.

Ókeypis ráðgjöf

Ef verkefni er fyrir höndum er tilvalið að hafa samband við Fyrirtækjaþjónustu IKEA og nýta sér þessa ókeypis þjónustu, en það getur einfaldað verkið til muna að hafa einhvern sem heldur utan um birgðir, tínir til og sendir vörur ásamt því að halda utan um allt kaupferlið og biðpantanir. Hægt er að panta tíma í ókeypis fyrirtækjaráðgjöf sem getur farið fram í verslun IKEA, á vinnustað viðskiptavinar eða í gegnum fjarfundarbúnað. Sendu tölvupóst á sala@ikea.is ef þú vilt nýta þér þjónustuna eða kynna þér málið betur.

Skipulagsvörur einfalda þér að raða í skúffur og skápa.
Í IKEA fást vörur sem koma til móts við mismunandi flokkunarþarfir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
16.11.2023

Það geta allir fundið eitthvað fyrir jólaundirbúninginn á Svörtudögum Boozt

Það geta allir fundið eitthvað fyrir jólaundirbúninginn á Svörtudögum Boozt