fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fókus

Magnús Kjartan greindist með hvítblæði í fyrra og er í viðhaldsmeðferð – „Hef fulla trú á því að skugginn hverfi aldrei en fari bara að gera það sama og ég“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 13:30

Magnús Kjartan Eyjólfsson Mynd: Kraftur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Kjartan Eyjólfsson, tónlistarmaður og aðalsöngvari Stuðlabandsins, greindist með bráðaeitilfrumuhvítblæði fyrir tæpu ári, laugardaginn 17. febrúar.

Unnusta hans, Sigríður Jónsdóttir, sagði þau þakklát fyrir að meinið hafi greinst á byrjunarstigi, en ljóst væri að framundan væri nýr veruleiki og stærsta verkefni fjölskyldunnar til þessa.

Sjá einnig: Magnús Kjartan greindur með hvítblæði – „Við finnum stuðninginn og tökum þessu verkefni af fullum þunga“

Magnús Kjartan hefur verið opinskár með veikindi sín og er einn þeirra sem segir sögu sína í árlegu fjáröflunar- og vitundarátaki Krafts. Markmið átaksins er að vekja athygli á mikilvægi starfsemi Krafts og veita fólki innsýn inn í þær áskoranir sem fylgja því að greinast ungur með krabbamein eða vera aðstandandi, en um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju hér á landi.

Magnús var fertugur ósköp venjulegur fjölskyldufaðir með fjögur börn og voru þau hjónin nýbúin að taka fimmta barnið að sér í fóstur þegar hann greindist.

„Ég var bara að fara að gera mig kláran í vinnudag, ég ætlaði að fara að spila á balli á laugardagskvöldi. Vakna með einhverja svarta bletti á tungunni sem ég ákvað að láta kíkja á og fæ þá skýringu að ég sé með hvítblæði,“ segir Magnús.

Hann segist hafa ætlað að halda sig við að mæta í vinnuna um kvöldið, en læknirinn á vakt sagt að hann þyrfti að fá annan til að mæta. Magnús var sama kvöld lagður inn á krabbameinsdeildina á Landspítalanum.

„Þegar maður fær þetta verkefni í hendurnar að greinast með krabbamein, og þegar ég segi ég þá vil ég frekar meina við fjölskyldan. Þó það sé vissulega bara ég sem greinist með krabbamein líkamlega þá er í rauninni fjölskyldan öll að greinast með krabbamein.“

Fékk ráðgjöf og stuðning hjá Krafti

Kraftur bauð Magnúsi í kaffi og spjall. Segist hann til dæmis ekki hafa haft hugmynd um að hann gæti fengið lyfjakort svo hann þyrfti ekki að leggja háar fjárhæðir fram fyrir lyfjum.

„Svo komu þau mér í skilning um að ég væri ekki einn, ég gæti alltaf leitað þangað. Maður getur mætt og talað við fólk á jafningjagrundvelli, fólk sem veit hvernig þér líður hvað þú ert að ganga í gegnum.

Ef þið sjáið fyrir ykkur teiknaða mynd af manneskju og skugga og skugginn er ekki að gera það sama og manneskjan vill gera. Ég myndi lýsa krabbameini akkúrat þannig,“ segir Magnús.

„Nú er staðan hjá mér þannig, ég get orðað það þannig að skuggamyndin er að dofna og er kannski farin að gera meira það sem ég vil að hún geri.“

Í dag er Magnús í viðhaldsmeðferð og verður í henni næstu tvö árin ef ekkert breytist.

„Ég ætla svo sannarlega að vona að ekkert breytist og ég hef fulla trú á því að skugginn hverfi aldrei en fari bara að gera það sama og ég.“

Þegar hann er spurður að því hvaða þýðingu „Lífið er núna“ hafi fyrir hann, segir hann:

„Lífið er núna hefur mismunandi meiningu fyrir mér á hverjum einasta degi. Ég myndi segja að það sem kemur sterkast upp í hugann er: Notaðu tímann sem þú hefur, þú veist aldrei hvað hann er langur“.

Yfirskrift fjáröflunar- og vitundarvakningar Krafts í ár er Ég á lítinn skrítinn skugga – Lífið er núna og vísar til þeirra langtímaáhrifa sem það hefur að greinast ungur með krabbamein, ekki bara á þann sem greinist heldur einnig á aðstandendur. Hvort sem við höfum greinst með krabbamein, einhver okkur nákominn eða við orðið fyrir öðrum áföllum á lífsleiðinni, þá eigum við öll okkar skugga sem er alltaf til staðar. Stundum er skugginn stór, stundum verður hann að daufum útlínum og stundum hverfur hann alveg undir skósólana. En skugginn er alltaf til staðar. Hann er þögull ferðafélagi og partur af lífi okkar allra.

Sjá einnig: „Ég á lítinn skrítinn skugga – Lífið er núna“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Grínistinn ósáttur eftir að hann var leiddur í gildru ásamt meintum ættingja – „Er hægt að klippa þetta út?“

Grínistinn ósáttur eftir að hann var leiddur í gildru ásamt meintum ættingja – „Er hægt að klippa þetta út?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Auglýsti eftir kærasta og fékk 5.000 umsóknir – Segir konum að varast þessar týpur af körlum

Auglýsti eftir kærasta og fékk 5.000 umsóknir – Segir konum að varast þessar týpur af körlum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fræðsluskot Óla tölvu: Splunkuný tækni frá Open AI

Fræðsluskot Óla tölvu: Splunkuný tækni frá Open AI
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mikið áfall fyrir karlmenn að missa blöðruhálskirtilinn og reisnina

Mikið áfall fyrir karlmenn að missa blöðruhálskirtilinn og reisnina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lagði í bílastæðakjallara í Reykjavík yfir nótt og fékk áfall þegar hún sá hvað kostaði – „Þetta er ekki gjald, þetta er rán“

Lagði í bílastæðakjallara í Reykjavík yfir nótt og fékk áfall þegar hún sá hvað kostaði – „Þetta er ekki gjald, þetta er rán“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einstakar ljósmyndir frá Reykjavík á áttunda áratugnum – Sumt hefur gjörbreyst en annað er alveg eins

Einstakar ljósmyndir frá Reykjavík á áttunda áratugnum – Sumt hefur gjörbreyst en annað er alveg eins