fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Fókus

Hart tekist á um hækkandi verð á bragðaref í Ísbúð Vesturbæjar – „Okrið endalausa“

Fókus
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 11:30

Mynd/Já.is/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur ekki farið framhjá neinum að verð á matvörum og ýmissi þjónustu hefur farið hækkandi undanfarið.

Í Facebook-hópnum Vertu á verði – Eftirlit með verðlagi er rætt um slíkar hækkanir og borið saman verð á milli þjónustuaðila. Síðastliðnar vikur hefur til dæmis verið rætt um verð á kaffihúsum og kostnaðinn við að leggja í miðbænum yfir nótt.

Sjá einnig: Lagði í bílastæðakjallara í Reykjavík yfir nótt og fékk áfall þegar hún sá hvað kostaði – „Þetta er ekki gjald, þetta er rán“

Fólk virðist oftast skiptast í tvær fylkingar, annars vegar er það fólkið sem hneykslast á hækkandi verði og segist ekki ætla að nýta sér þessa þjónustu áfram, svo eru það þeir sem benda á að rekstraraðilar séu bara að reyna að elta skottið á sér, en fyrir þá hefur hráefna- og húsnæðiskostnaður hækkað og svo framvegis.

Bragðarefurinn hefur hækkað

Ísbúð Vesturbæjar hækkaði verðskrána á dögunum og greindi einn meðlimur hópsins frá því að lítill bragðarefur kosti nú 1990 krónur.

Viðbrögðin leyndu ekki á sér og hafa yfir 150 manns brugðist við færslunni, meirihluti með annað hvort hissa eða reiði tjákni (e. emoji).

„Okrið endalausa,“ sagði einn.

Það voru þó ekki allir hneykslaðir og sagði einn að þetta væri „fínt verð.“

„Fyrir LÍTINN?“ spurði þá ein.

„Maður þarf ekki stærri, svo já,“ sagði hann.

Stór á 2990 krónur

Eins og má sjá hér að neðan kostar lítill 1990, það er þó hægt að kaupa „pínulítinn“ á 1790 krónur. Miðstærð kostar 2190 krónur og stór er á 2990 krónur.

DV fékk ábendingu um að stærðirnar séu ólíkar milli ísbúða, að lítill bragðarefur hjá Vesturbæjarís sé jafnstór og miðstærð hjá öðrum ísbúðum. Ekki er vitað hvort það eigi við allar ísbúðir og hver munurinn sé.

Skjáskot af Instagram-síðu Ísbúð Vesturbæjar

DV leitaði til forsvarsmanna Ísbúðar Vesturbæjar en þeir kusu að tjá sig ekki um málið.

Eltir ekki verðið heldur rörin

Einn meðlimur sagðist vera hættur að elta verðið.

„Elti núna bara ísbúðir sem bjóða upp á plaströr – sé enn eftir peningnum þegar ég keypti risashake í Ísbúð Garðabæjar sl. sumar og papparörir varð orðið að mauki þegar ég var rétt byrjaður – svo mikið var eftir af shaknum þegar ég henti honum í ruslatunnuna að það heyrðist upp í Urriðaholt – ef ég myndi stofna ísbúð myndi ég kalla hana „Plaströraísbúðin.““

Ísinn má hækka ef annað lækkar

Einn væri til að sjá annað lækka á móti. „Mætti hækka um helming mín vegna ef það lækkaði verðið á nauðsynjavörum í staðinn en þetta kex ruglaða land hækkar bara allt sama hvað,“ segir hann.

Annar slær á létta strengi. „Ódýrast að borða bara það sem úti frýs.“

„Ef enn eru kaupendur, þá virkar þetta“

Einn netverji segir að þetta gangi upp á meðan fólk kaupir vörurnar.

„Eitt er að skilja ekki markaðslögmál sem leyfa þessu að gerast. Ef enn eru kaupendur, þá virkar þetta. En annað er að skilja að hráefniskostnaður liggur líklega nálægt 200kr pr bragðaref og þá verða menn að ákveða hvort slík álagning sé ásættanleg. Og það um vetur. Auðvitað þarf að reka verslun með eðlilegum rekstrarkostnaði en þetta keyrir um þverbak,“ segir hann.

„Mjólkuvara (hráefnið) hefur hækkað í verði. Sem fer beint út í verðlagið á ísnum. Einnig sælgæti,“ segir annar.

Annar meðlimur segir að ís sé orðinn að „lúxusvöru“ og stingur ein kona upp á því að fólk hætti bara að kaupa ís, sérstaklega bragðaref.

„Alls ekki, en allt er best í hófi,“ segir þá annar meðlimur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Grínistinn ósáttur eftir að hann var leiddur í gildru ásamt meintum ættingja – „Er hægt að klippa þetta út?“

Grínistinn ósáttur eftir að hann var leiddur í gildru ásamt meintum ættingja – „Er hægt að klippa þetta út?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Magnús Kjartan greindist með hvítblæði í fyrra og er í viðhaldsmeðferð – „Hef fulla trú á því að skugginn hverfi aldrei en fari bara að gera það sama og ég“

Magnús Kjartan greindist með hvítblæði í fyrra og er í viðhaldsmeðferð – „Hef fulla trú á því að skugginn hverfi aldrei en fari bara að gera það sama og ég“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fræðsluskot Óla tölvu: Splunkuný tækni frá Open AI

Fræðsluskot Óla tölvu: Splunkuný tækni frá Open AI
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mikið áfall fyrir karlmenn að missa blöðruhálskirtilinn og reisnina

Mikið áfall fyrir karlmenn að missa blöðruhálskirtilinn og reisnina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lagði í bílastæðakjallara í Reykjavík yfir nótt og fékk áfall þegar hún sá hvað kostaði – „Þetta er ekki gjald, þetta er rán“

Lagði í bílastæðakjallara í Reykjavík yfir nótt og fékk áfall þegar hún sá hvað kostaði – „Þetta er ekki gjald, þetta er rán“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einstakar ljósmyndir frá Reykjavík á áttunda áratugnum – Sumt hefur gjörbreyst en annað er alveg eins

Einstakar ljósmyndir frá Reykjavík á áttunda áratugnum – Sumt hefur gjörbreyst en annað er alveg eins