Hver annar en Trump myndi um hádegisbil sverja þess eið að virða bandarísk lög og nokkrum klukkustundum síðar, náða mörg hundruð manns sem brutu lögin og hlutu dóm fyrir valdaránstilraun?
Hver annar myndi í besta Pútín-stíl hóta því að stækka landið sitt með því að taka land frá öðrum, annað hvort með því að beita efnahagsþvingunum eða með hervaldi?
Þetta er meðal þess sem er velt upp í umfjöllun Jótlandspóstsins um Trump og er bent á að í kosningabaráttunni hafi flestir hrist höfuðið þegar Trump skýrði frá öllu því sem hann ætlaði að gera á fyrsta degi sínum í Hvíta húsinu. Þetta var bara Trump og hans venjulegi gorgeir. Það vissu allir.
En brosin er nú frosin á þeim sem hafa gagnrýnt Trump. Hann sýndi það strax á fyrsta degi í Hvíta húsinu að hann hefur tögl og haldir í bandarískum stjórnmálum og það virðist sem engar takmarkanir séu á hvað hann getur gert.
Trump virðist sjálfsöruggari en nokkru sinni áður og hann gerir mikið úr því að sýna heiminum að nú geri hann það sem honum sýnist.