Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) hefur samið við Vettvang vefstofu um gerð nýs vefs KSÍ (ksi.is). Vettvangur var hlutskarpastur úr hópi nokkurra öflugra fyrirtækja sem öll lögðu inn áhugaverð og metnaðarfull tilboð.
Vettvangur hefur komið að hönnun og smíði fjölmargra stærri og smærri vefsíðna með framúrskarandi árangri og fulltrúar Vettvangs sýndu verkefninu mikinn áhuga og metnað. Innan þeirra raða er mikil reynsla og þekking, og ekki síður þekking á fótbolta og starfsumhverfi KSÍ og íslenskra knattspyrnufélaga.
Áætlað er að nýr vefur KSÍ fari í loftið í nóvember á þessu ári, og samhliða því verður nýtt mótakerfi KSÍ tekið í notkun. Með samstarfinu við Vettvang vefstofu vill KSÍ skapa nútímalegan og notendavænan vef fyrir alla þá sem fylgjast með og koma að íslenskri knattspyrnu.
Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ:
„Samskiptin við Vettvang í öllu þessu ferli hafa verið til fyrirmyndar, og við hjá KSÍ erum spennt fyrir samstarfinu, sem ég er ekki í nokkrum vafa um að verði mjög árangursríkt. Vefur KSÍ gegnir lykilhlutverki í öllu okkar starfi og við hlökkum til þeirra verkefna sem eru framundan með Vettvangi.“
Jón Kári Eldon hjá Vettvangi:
„Það er spennandi og skemmtileg áskorun að vinna að nýjum vef fyrir Knattspyrnusamband Íslands, þar sem markmiðið er að sameina framúrskarandi notendaupplifun og kraftmikla upplýsingamiðlun. Samskiptin hafa verið frábær og það er greinilegt að mikill metnaður er til staðar hjá KSÍ fyrir nýjum vef.“