fbpx
Mánudagur 20.janúar 2025
Fréttir

Guðmunda þekkir það vel að vera aftast í röðinni og gleymast – „Ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. janúar 2025 12:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Læknar hlæja að manni, gera lítið úr veikindum manns og hunsa mann og maður upplifir að maður sé fyrir og bara ruglaður. Þetta hefur kostað mannslíf,“

segir Guðmunda G. Guðmundsdóttir, sem segir um sjálfa sig að hún sé miðaldra kona, öryrkja og úr lágstétt, komin af verkafólki. Að hennar sögn allt áhættuþættir þegar kemur að því að fá læknisþjónustu.

Tekur dæmi um hrakfallasögu sína af heilbrigðiskerfinu

„Allir vita að konur eru bara móðursjúkar og gera allt of mikið úr veikindum sínum og ekki lagast það að verða miðaldra öryrki ja maður getur bara gleymt því í raun,“ segir Guðmunda í grein sinni á Vísi og tekur nokkur „skemmtileg“ dæmi:

„Það hringdi í mig læknir og tjáði mér, „við vitum ekki hvað er að þér en erum nokkuð vissir um að það drepur þig ekki.“

Ég fékk lyf og leiðbeiningar um inntöku á glasinu var „takist hálftíma fyrir verki.“

Ég þurfti að endurnýja örorkuna mína fyrir mörgum árum, læknirinn mælti með 50% örorku því það væri ekkert líf fyrir þrítuga konu að sitja heima alla daga, þó það sé kannski rétt þá læknaði það mig ekki, ég varð samt að bíta á jaxlinn og vinna hálfan daginn í tvö ár uns ég fékk þessu breytt aftur.

2018 sagði ég lækni frá vandamáli sem hefði verið að hrjá mig um skeið, hún brást hlæjandi við og spurði, með orðunum hvernig getur það gerst, ég komst svo að því síðar þegar ég þorði að nefna þetta við annan læknir að þetta væri ekkert til að hlæja að og hefði betur verið rannsakað betur þá og væri líklega tengt þessu sem er að hrjá mig núna.

Eitt ruglið var að læknir, sem ég var búin að bíða eftir tíma hjá í 15 daga svo hann gæti tilvísað mér áfram gleymdi að senda tilvísunina af stað… ég komst að því fyrir tilviljun, svo ég þurfti að bíða eftir öðrum tíma í nokkra daga hjá öðrum lækni svo hægt væri að klára þetta, þetta var bráðatilfelli!

Heilbrigðisstarfsmaður hringdi að bjóða mér tíma í rannsókn, ég gat fengið tíma 28. apríl, ég missti út úr mér, ég lifi það ekki af að bíða svo lengi, henni varð á að hlæja…. svo ég sagði henni að mér væri alvara, ég væri í forgang vegna bráðatilfellis og minn læknir hefði talað um 13. mars …. þegar hún skoðaði málið sá hún að þetta var bara skráð inn á spjall á innri vef starfsmanna en tíminn aldrei skráður……….

Annar læknir ætlaði að hringja strax þegar hann kæmi úr fríi, það var í ágúst 2023.

Ég fór til heimilislæknis í enda árs og ætlaði hann að kanna nokkra hluti fyrir mig, ég les svo á fréttamiðlum að hann er hættur og engir læknar á staðnum, hvað með mig og mín veikindi? er öllum sama þó ég sé búin að vera með hausverk síðan í ágúst vegna lyfja en hann ætlaði að skoða hvaða önnur lyf sem ég gæti fengið? eða að ég sé enn með verki og hreyfiskerðingu síðan ég braut úlnliðinn fyrir ári, hann sendi mig í myndgreiningu en hvað ef enginn fylgir því eftir eða veit af því þá gerist varla neitt, eina leiðin er að bíða eftir öðrum tíma í nokkra mánuði.“

Bíður enn eftir símatíma sem hún pantaði fyrir tveimur vikum

Guðmunda rekur í síðasta dæminu að hún hafi leitað á bráðamóttökuna í byrjun janúar eftir að eitthvað small í öxlinni á henni:

„Læknirinn vildi senda mig í myndrannsókn og sagði mér að láta heimilislæknirinn fylgja því eftir, ég tjáði henni að ég byggi á Hvolsvelli og þar væru engir læknar, svo mælti hún með að ég hefði samband við sérfræðilæknirinn sem ég er hjá og segði honum hvað hefði gerst, ég sagði henni að ekki væri hægt að hringja í hann, hún hélt nú samt að hann vildi vita af þessu, en hann er einn af þessum Óínáanlegu, ég pantaði símatíma það eru komnar 2 vikur síðan.“

Þekkir það vel að vera aftast í röðinni

Segir Guðmunda öryrkja þekkja það vel að vera aftast í röðinni og gleymast ótengt kyni og aldri, það sama megi segja um þá sem lifa við fátækramörk og geta þannig ekki farið í rannsóknir og pantað tíma hjá hvaða lækni sem er.

„Það þarf að verða viðhorfsbreyting hjá læknastéttinni gagnvart konum, öryrkjum og láglaunafólki, við eigum ekki og getum ekki alltaf beðið, við megum líka eiga okkur mannsæmandi líf minni áhyggjur og verki.“

Guðmunda spyr hvort ekki megi veita meiri fjármunum í heilbrigðiskerfið svo allir geti fengið viðunandi þjónustu óháð kyni og fjárhag. Og kjör þeirra lægst launuðustu um leið bætt 

„því án okkar getið þið ekki sinnt ykkar störfum, það þarf að þrífa, passa börn, annast aldraða og sjúka og elda mat, án verkafólks myndi fátt gerast í þjóðfélaginu. Hættum að mismuna fólki við erum öll mikilvæg.“

Grein Guðmundu má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fólk að gefast upp á lífrænu flokkunarpokunum – Mölflugur á sveimi og allt á floti í eldhússkápum

Fólk að gefast upp á lífrænu flokkunarpokunum – Mölflugur á sveimi og allt á floti í eldhússkápum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fiskiskip rak stjórnlaust upp í fjöru við Patreksfjörð – Skipstjórinn á spítti

Fiskiskip rak stjórnlaust upp í fjöru við Patreksfjörð – Skipstjórinn á spítti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jón Þór svarar ákæru um manndrápstilraun og fleiri brot

Jón Þór svarar ákæru um manndrápstilraun og fleiri brot
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vörubílstjóri þóttist vera annar maður – Var líka fullur og próflaus

Vörubílstjóri þóttist vera annar maður – Var líka fullur og próflaus