Þar bjuggu hollensk hjón með tvö börn sín. Konan og börnin höfðu aðlagast samfélaginu hratt og auðveldlega en fjölskyldufaðirinn, Rivallo Pelupessy, ekki.
Expressen segir að af þessum sökum hafi konan viljað skilja við hann.
Þegar hún bar þetta upp við hann, tók hann því mjög illa og náði sér í 87 cm langt sverð og stakk konuna í magann og lést hún af völdum áverka sinna.
Í yfirheyrslum hjá lögreglunni kom maðurinn með margvíslegar skýringar á atburðarásinni sem endaði með að eiginkona hans var stungin til bana.
Í einni útgáfunni sagðist hann hafa kastað sverðinu sem hafi lent í maga hennar fyrir tilviljun. Í annarri útgáfu sagðist hann hafa hótað henni en ekki snert sverðið.
En skýringar hans þóttu vægast sagt ótrúverðugar og nú hefur hann verið fundinn sekur um morð og var hann dæmdur í ævilangt fangelsi. Honum verður einnig vísað úr landi ef svo fer að hann afpláni ekki allan dóminn.