Matthew Livelsberger var 37 ára gamall en hann svipti sig lífi áður en Cybertruck-bifreiðin sprakk í loft upp.
Matthew hlaut nokkrar viðurkenningar fyrir herþjónustu sína sem að sögn AP var til fyrirmyndar.
Hann glímdi þó bæði við andleg og líkamleg veikindi og er hann til dæmis sagður hafa lent í aðstæðum þar sem hann horfði upp á dauða félaga sinna á vígvellinum. Það hafði ekki síður áhrif á hann að bera ábyrgð á dauða einstaklinga úr óvinaherjum.
Sjá einnig: Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald
AP ræddi við fyrrverandi kærustu Matthews, Aliciu Arritt, en þau voru saman á árunum 2018 til 2021. Alicia þessi starfar við að aðstoða hermenn sem slasast hafa á vígvellinum og segist hún hafa séð einkenni TBI, eða heilaáverka, hjá Matthew. Hann hafi tjáð henni að hann væri oft þjakaður af gríðarlegri þreytu eftir að hafa fengið ítrekað heilahristing.
„Hann fór í gegnum tímabil þar sem hann dró sig mjög í hlé og glímdi við þunglyndi og minnistap,“ segir hún. Þá hafi hún lagt til við hann að hann leitaði sér aðstoðar en hann ekki viljað það af ótta við að fá ekki áframhaldandi starf í hernum.
Spencer L. Evens, fulltrúi bandarísku alríkislögreglunnar í LasVegas, sagði við Washington Post á dögunum að Matthew hefði líklega þjáðst af áfallastreituröskun og öðrum kvillum. Greint var frá því fyrir helgi að Matthew hefði nýlega hætt með kærustu sinni sem grunaði hann um framhjáhald.
Í viðtali The Post við Aliciu kemur fram að þau hafi hætt saman árið 2021 og fyrir því hafi verið nokkrar ástæður. Hún hafi ekki viljað flytja ótt og títt vegna starfs hans í hernum og þá hafi hann ekki verið sérstaklega áhugasamur um að verða stjúpfaðir sonar hennar. Hún talaði þó fallega um Matthew og sagði að hann hafi verið góðhjartaður og aldrei skeytt skapi sínu.