fbpx
Mánudagur 23.desember 2024
Fréttir

Egill Þór er látinn

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. desember 2024 07:58

Egill Þór Jónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Egill Þór Jónsson, teymisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er látinn, 34 ára að aldri.

Egill lést á Landspítalanum við Hringbraut í návist fjölskyldu og vina síðastliðinn föstudag en hann hafði undanfarin ár háð hetjulega baráttu við krabbamein.

Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag.

Egill fæddist þann 26. júní 1990 og ólst upp í Breiðholti þar sem hann gekk í Hólabrekkuskóla. Hann stundaði nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og lauk stúdentsprófi þar árið 2011. Hann lauk svo BA-prófi í félagsfræði við Háskóla Íslands árið 2015.

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að hann hafi helgað starfsferil sinn fólki með fatlanir og geðræn vandamál. Var hann til dæmis stuðningsfulltrúi í búsetukjarnanum Rangárseli árin 2015 til 2018 og teymisstjóri í Rangárseli frá 2016.

Hann var kjörinn borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins árið 2018 og gegndi því embætti til ársins 2022. Hann sat í ýmsum nefndum borgarinnar, sat í stjórn Stúdentaráðs, var formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta 2015 til 2016 og var formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 2023 til 2024.

Þá sat hann í stjórn Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra árin 2020 til 2023.

Egill Þór lætur sig eiginkonu, Ingu Maríu Hlíðar Thorsteinson, hjúkrunarfræðing og ljósmóðir, og tvö börn, 3 og 5 ára.

Egill ræddi veikindin á opinskáan hátt í viðtali við DV árið 2022, en viðtalið má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigríður segir Helga ekki geta verið vararíkissaksóknari þrátt fyrir úrskurð ráðherra – „Ber meiri keim af einelti en lögfræði“

Sigríður segir Helga ekki geta verið vararíkissaksóknari þrátt fyrir úrskurð ráðherra – „Ber meiri keim af einelti en lögfræði“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kvikmyndagerðarmaður auglýsir eftir uppljóstrara – „Ef þú býrð yfir upplýsingum sem snerta okkur öll…“

Kvikmyndagerðarmaður auglýsir eftir uppljóstrara – „Ef þú býrð yfir upplýsingum sem snerta okkur öll…“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna óttast ekki Sigurð G. og SVEIT – „Bring it on“

Sólveig Anna óttast ekki Sigurð G. og SVEIT – „Bring it on“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessi matvæli eiga alls ekki að geymast í ísskáp

Þessi matvæli eiga alls ekki að geymast í ísskáp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt brjálað í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði – Byggðu íbúð í geymslunum

Allt brjálað í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði – Byggðu íbúð í geymslunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskur skurðlæknir vinnur við að bjarga slösuðum eftir árásina í Magdeburg

Íslenskur skurðlæknir vinnur við að bjarga slösuðum eftir árásina í Magdeburg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tók pizzaofninn með við lok leigutíma og olli skemmdum á húsnæðinu – Sveik loforð um þrif en sagðist þó hafa skilað í betra standi en hann tók við

Tók pizzaofninn með við lok leigutíma og olli skemmdum á húsnæðinu – Sveik loforð um þrif en sagðist þó hafa skilað í betra standi en hann tók við
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árni bendir lögreglu á að hann gengur enn laus – „Hvað veldur?“

Árni bendir lögreglu á að hann gengur enn laus – „Hvað veldur?“