fbpx
Mánudagur 23.desember 2024
Fréttir

Eiga ekki orð yfir „málaliða“ Pútíns – Hvað eru þeir að gera?

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. desember 2024 04:45

Hér sjást norðurkóreskir hermenn á ferð yfir akur. Mynd:OS Intelligence

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússar hafa fengið aðstoð frá Norður-Kóreu í stríðinu í Úkraínu. Vestrænar leyniþjónustustofnanir telja að 10.000 til 15.000 norðurkóreskir hermenn hafi verið sendir til Rússlands. Nú þegar hafa fregnir borist af miklu mannfalli Kóreumannanna og það er kannski engin furða að svo sé.

„Norður-Kóreumennirnir hlaupa yfir akrana og þeir eru svo margir. Þeir skilja ekki hvað er að gerast. Við vorum mjög hissa og við höfðum aldrei séð neitt þessu líkt – 40 -50 menn sem hlaupa yfir akur. Þeir eru fullkomið skotmark. Rússarnir hafa aldrei hlaupið á þennan hátt.“

Þetta sagði steinhissa úkraínskur herforingi í samtali við The Washington Post. Maðurinn nýtur nafnleyndar af öryggissjónarmiðum. En hann er ekki sá eini sem hefur tjáð sig um undarlega hegðun Norður-Kóreumannanna, hegðun sem verður þeim að bana.

Suðurkóreska leyniþjónustan NIS segir að ástæðan fyrir miklu mannfalli Norður-Kóreumanna sé að þeir hafi ekki skilning á hvernig þeir eiga að takast á við drónaárásir og auk þessi þekki þeir ekki vígvöllinn þar sem þeir séu notaðir sem fallbyssufóður.

„Ég veit ekki hvort þeir vita hvað er að gerast eða hvort Rússarnir sendi þá viljandi af stað,“ sagði úkraínski herforinginn einnig og bætti við að Norður-Kóreumennirnir noti verstu hugsanlegu taktíkina þegar þeir takast á við dróna. Í staðinn fyrir að hlaupa eins og fjandinn sé á hælum þeirra, þá stoppi þeir og reyni að skjóta drónana niður. Það sé ávísun á dauða.

NIS segir að innan rússneska hersins sé að sögn búið að kvarta undan Kóreumönnunum vegna þess að þeir þekki lítið til dróna og eru þeir sagðir vera meiri byrði en gagnlegir.

Þá segir leyniþjónustan að orðrómar séu á kreiki um að fleiri norðurkóreskir hermenn verði sendir til Rússlands.

Segir NIS að Rússar muni væntanlega launa Norður-Kóreu greiðann á einhvern hátt, til dæmis með að hjálpa til við að nútímavæða vopnabúr þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ófögnuðurinn blasir við ferðamönnum við komuna til Íslands

Ófögnuðurinn blasir við ferðamönnum við komuna til Íslands
Fréttir
Í gær

Netverjar bjartsýnir eftir kynningu nýrrar ríkisstjórnar – „Faðmlag segir meira en 1000 orð“

Netverjar bjartsýnir eftir kynningu nýrrar ríkisstjórnar – „Faðmlag segir meira en 1000 orð“