fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Eyjan

Halla endurnýjar listaverkin á Bessastöðum

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. desember 2024 17:37

Halla Tómasdóttir Mynd: Aldís Pálsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur í samvinnu við Listasafn Íslands endurnýjað það úrval íslenskrar myndlistar sem prýðir Bessastaði. Allt frá lýðveldisstofnun hefur Listasafn Íslands lánað listaverk til Bessastaða, sem eiga sér mikilvægan sess í menningarsögu landsins auk þess að vera aðsetur forseta Íslands. Þúsundir gesta, jafnt íslenskra sem erlendra, heimsækja forsetasetrið á ári hverju og vekja verk íslenskra myndlistarmanna þar jafnan mikla athygli. Þá er húsið opnað almenningi að minnsta kosti tvisvar á ári, á Safnanótt og Menningarnótt.

Samtals 28 íslensk verk úr safnkosti Listasafns Íslands prýða nú Bessastaði að loknum breytingum auk nokkurra verka sem eru í eigu embættisins. Samhliða endurnýjuninni verður sett upp ný síða á vef Listasafns Íslands sem tileinkuð er listaverkunum á Bessastöðum. Markmiðið er að þjóðhöfðingjasetrið endurspegli þá miklu grósku sem einkennir íslensk myndlistarlíf og jafnframt að greiða aðgengi almennings að upplýsingum um listaverkin sem þar má sjá, eins og segir í tilkynningu frá forsetaembætti Íslands.

Aukin breidd í úrvalinu

Við valið á nýjum listaverkum fyrir Bessastaði var haft í huga að færa aukna breidd í þá list sem þar er til sýnis. Þannig spanna verkin nú lengra tímabil í íslenskri listasögu en áður auk þess sem verkum eftir myndlistarkonur hefur verið fjölgað til jafns við karla.

Í móttökusal Bessastaða er nú listaverk eftir Nínu Tryggvadóttur í öndvegi en Flugþrá Jóhannesar Kjarvals, sem þar var áður, fær enn að njóta sín í salnum, að viðbættu verki hans Blóm í landslagi. Þá er verkið Vindstroka eftir Kjarval á sama stað og áður í bókhlöðunni. Önnur ný verk í móttökusalnum eru eftir Kristínu Jónsdóttur, Júlíönu Sveinsdóttur, Jón Stefánsson, Kristján Davíðsson, Georg Guðna Hauksson og Eggert Pétursson. Öll eiga þau það sameiginlegt að leita innblásturs í íslenskri náttúru þótt hvert og eitt þeirra geri það með sínum sérstaka hætti.

Í Suðurstofu Bessastaða eru verk eftir listafólk sem öll hafa unnið með myndheim abstrakt listar og spanna þau tæplega 100 ára tímabil. Hið elsta er eftir Finn Jónsson sem var frumkvöðull í abstraktlist á Íslandi. Meðal verka á fyrstu sýningu hans, árið 1925, var verkið Óður til mánans sem nú má sjá á Bessastöðum. Yngsta verkið í Suðurstofu er Sveigja frá árinu 2023 eftir Kristínu Morthens sem er fædd árið 1992. Þá eru í Suðurstofu verk eftir Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Guðmundu Andrésdóttur og Kristján Davíðsson.

Borðstofa Bessastaða er helguð úrvali verka sem innblásin eru af íslenskum atvinnuháttum. Í verkum eftir Kristínu Jónsdóttur, Þorvald Skúlason og Jón Engilberts má sjá fólk við ýmis störf sem tengjast þéttbýlismenningu. Sveitarómantíkin svífur hins vegar yfir vötnum í verkum Louisu Matthíasdóttur og Jóhanns Briem sem einnig prýða borðstofuna. 

Í Thomsenstofu voru valin verk eftir þrjá frumherja íslenskrar myndlistar, þá Þórarin B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson og Jóhannes Kjarval. Þar má einnig sjá verk í eigu forsetaembættisins eftir danska listamanninn Emanuel Larsen sem var málað árið 1847.

Gjöf frá Úkraínuforseta

Á Thomsengangi hangir nú vefnaðarverk sem Volodymyr Zelenskyy Úkraínuforseti færði forseta Íslands að gjöf eftir fund þeirra á Bessastöðum í október 2024. Verkið, sem kallast Sólblóm eftir þjóðarblómi Úkraínu, er handofið veggteppi eftir úkraínskar listakonur frá bænum Reshetylivka í Poltava-héraði sem þekkt er fyrir einstakt handverk. Í sama rými eru tvö blómamálverk eftir þær Júlíönu Sveinsdóttur og Nínu Sæmundsen sem valin voru sérstaklega til að kallast á við veggteppið.

Loks ber að nefna höggmyndina Móðir og barn eftir Tove Ólafsson en það verk blasir við gestum Bessastaða þegar gengið er um blómaskálann inn í móttökusal.

Almenningi býðst næst að heimsækja Bessastaði á Safnanótt sem haldin verður í tilefni Vetrarhátíðar þann 7. febrúar næstkomandi. Nánar má fræðast um myndlistina á þjóðhöfðingjasetrinu á vef Listasafns Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna

Orðið á götunni: Vegakerfið hrundi á vakt Framsóknar og dýralæknanna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna: Hef ekki áhyggjur af fjölskyldutengslum við útgerðina í landinu

Áslaug Arna: Hef ekki áhyggjur af fjölskyldutengslum við útgerðina í landinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins

Áslaug Arna: Stjórnkerfið svifaseint, snýst um sjálft sig og vinnur gegn kjörnum fulltrúum fólksins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta kostar krónan okkur

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta kostar krónan okkur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?

Könnun: Hvern vilt þú sjá sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðlaugur Þór: Gímaldið er stærðar kjötvinnsla en ekki lítill skúr – hvernig gat þetta gerst?

Guðlaugur Þór: Gímaldið er stærðar kjötvinnsla en ekki lítill skúr – hvernig gat þetta gerst?