fbpx
Mánudagur 21.apríl 2025
Fréttir

Sex ára drengur setti fingur í hurðarfals myndmenntastofu og unglingur sparkaði í hurðina

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. desember 2024 15:30

Unglingur kom og sparkaði í hurðina þegar drengurinn ungi var með puttana í falsinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Faðir höfðaði mál gegn Reykjavíkurborg og tryggingafélaginu Sjóvá almennum vegna slyss sem sex ára sonur hans varð fyrir fyrir 11 árum síðan, þegar hann klemmdi fingur í hurðarfalsi í skóla og hlaut opið beinbrot.

Faðirinn krafðist viðurkenningu skaðabótaábyrgðar vegna slyssins, sem var mjög alvarlegt og þurfti drengurinn meðal annars að leita til lækna í Svíþjóð.

Slysið varð þann 28. október árið 2013. Drengurinn var í myndmenntastofu skólans og stóð við dyrnar með fingur vinstri handar í hurðarfalsi þegar nemandi á unglingsaldri sem leið á átti eftir ganginum fyrir utan sparkaði í hurðina með þeim afleiðingum að baug og litlifingur vinstri handar klemmdust. Var barnið sent með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítala.

Áverkarnir voru miklir á naglbeði beggja fingra og fram í góm og fingurkjúkurnar voru lafandi. Röntgenmynd sýndi brot yst í kjúkunum og brotið var opið. Fékk barnið verkjalyf, fingurnir voru deyfðir og gómar saumaðir saman en nögl litla fingurs fjarlægð að mestu.

Varanleg örorka

Þurfti drengurinn að leita til lækna í Svíþjóð síðar. Hefur drengurinn kvartað undan kuldaóþoli, skertu skyni og hreyfitruflunum í fingrunum. Var varanleg örorka metin 4 prósent, eða 2 fyrir hvorn fingur.

Faðirinn gerði kröfu í nóvember árið 2014 á þeim grundvelli að hurðin hafi hvorki verið búin klemmuvörn né hurða stoppara. Einnig vildi hann meina að starfsmenn skólans hefðu ekki haft nægilegt eftirlit með drengnum. Sjóvá hafnaði hins vegar kröfunni á þeim grundvelli að aðbúnaður hafi ekki verið saknæmur og mistök starfsmanna hafi ekki átt sér stað. Slysið hafi verið ófyrirsjáanlegt.

Dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur sýknuðu Reykjavíkurborg og Sjóvá af kröfum föðursins en felldi niður málskostnað. Ekki hafi verið sýnt fram á að þurft hafi sérstakt eftirlit með syninum eða unglingnum sem sparkaði í hurðina. Ekki hafi heldur verið sýnt fram á að hurðin hafi verið vanbúin miðað við gildandi lög og reglugerðir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona föst inni á salerni

Kona föst inni á salerni
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Segir bæjarstjórn Seltjarnarnes verða að horfast í augu við raunveruleikann – Uppsafnaður halli 3 milljarðar og þjónusta í molum

Segir bæjarstjórn Seltjarnarnes verða að horfast í augu við raunveruleikann – Uppsafnaður halli 3 milljarðar og þjónusta í molum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans

Dómur fallinn yfir Hauki Ægi – Ákærður fyrir manndrápstilraun gegn sýrlenskum skutlara sem braut gegn dóttur kærustu hans