fbpx
Fimmtudagur 19.desember 2024
Fréttir

Snorri gagnrýnir Samtökin  ’78: „Þrátt fyr­ir það sæt­ir maður­inn nú saka­mál­a­rann­sókn“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. desember 2024 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir að samtök sem njóta eins ríks fjárstuðnings frá ríkisvaldinu verði að gæta sérstaklega að ábyrgð sinni og blanda ekki saman lögmætum viðhorfum og meintri hatursorðræðu.

Snorri skrifar aðsenda grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann gerir kæru Samtakanna ’78 gegn Eldi S. Kristinssyni, sem var oddviti Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í nýafstöðnum kosningum, að umtalsefni.

Eldur greindi frá kærunni í lok nóvember og lýsti því í skoðanagrein á Vísi að hann hefði verið boðaður í skýrslutöku hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna málsins. Kæran sneri að sjö ummælum sem Eldur hefur látið falla á síðastliðnum tveimur árum, meðal annars í aðsendri grein í Morgunblaðinu og á Facebook.

Tæplega refsiverð hatursorðræða

Snorri byrjar grein sína í Morgunblaðinu á að vísa í ein tiltekin ummæli sem Eldur er kærður fyrir:

„Alþingi held­ur að karl­menn geti fætt börn. Þessi lög eru í bága við bæði barna­sátt­mála SÞ og í bága við úr­sk­urð Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu er varðar rétt barns til þess að þekkja líf­fræðileg­an upp­runa sinn. Mann­eskj­ur sem fæða börn kall­ast kon­ur. Kon­ur sem fæða börn eru alltaf líf­fræðileg­ar mæður barna sinna. Al­veg óháð hvað van­stillt Alþingi seg­ir.“

Um þetta segir Snorri:

„Þetta skrifaði maður á Facebook þann 3. apríl 2024. Hann hef­ur í ljósi um­mæl­anna verið kærður til lög­reglu fyr­ir hat­ursorðræðu. Þótt sann­ar­lega sé til fólk sem er ósam­mála og aðhyll­ist það sjón­ar­mið að karl­menn geti fætt börn er þess­um frjáls­borna manni þó heim­ilt að hafna full­yrðing­unni og lýsa sinni eig­in skoðun. Í því felst tæp­lega refsi­verð hat­ursorðræða held­ur virðist tján­ing­in öllu held­ur var­in af stjórn­ar­skrá. Það sama gild­ir um laga­leg­ar út­legg­ing­ar manns­ins og þá skoðun hans að Alþingi sé „van­stillt“. Þrátt fyr­ir það sæt­ir maður­inn nú saka­mál­a­rann­sókn, var boðaður í skýrslu­töku til lög­reglu og nú er svo komið að kær­an er orðin að alþjóðlegu fjöl­miðlamáli, sem fjall­ar um tján­ing­ar­frelsi á Íslandi.“

Það skal tekið fram að Eldur er kærður fyrir fleiri ummæli en þessi hér að framan.

Skiptir máli hver kærir

Snorri segir í grein sinni að það skipti máli að sá sem leggur kæruna fram séu Sam­tök­in ’78, sem njóti veru­legs fjár­stuðnings rík­is­valds­ins í sam­ræmi við ákvörðun frá­far­andi rík­is­stjórn­ar­flokka. „Á sama tíma var maður­inn, þegar kær­an var lögð fram, sjálf­ur kom­inn á gild­an fram­boðslista til Alþing­is,“ segir Snorri.

Hann bætir við í grein sinni í Morgunblaðinu að vitaskuld sé það fréttnæmt þegar samtök, sem Alþingi fjármagnar, einsetji sér að sækja frambjóðanda til saka sem gagnrýnir hugmyndafræði samtakanna og þingið um leið.

„Að sönnu eru einnig til­tek­in í kær­unni önn­ur um­mæli manns­ins sem lýsa heift og fyr­ir­litn­ingu og eru alls ekki við hæfi í siðgæddri umræðu. En sam­tök sem njóta eins ríks fjár­stuðnings frá rík­is­vald­inu verða að gæta sér­stak­lega að ábyrgð sinni og blanda ekki sam­an lög­mæt­um viðhorf­um og meintri hat­ursorðræðu. Þar eru stjórn­völd kom­in ískyggi­lega ná­lægt bein­um til­raun­um til að refsa borg­ur­um fyr­ir tján­ingu. Ef því er leyft að viðgang­ast get­ur al­menn­ing­ur ekki dregið aðrar álykt­an­ir en að hin marg­um­talaða hat­ursorðræða sé ekk­ert annað en bara orðræða sem stjórn­völd hata.”

Snorri bætir svo við að ef félagasamtök, sem reiða sig alfarið á ríkisvaldið og séu þar með í vissum skilningi orðin hluti þess, gerist stórtæk í ritskoðun á samfélagsmiðlum séum við komin á hálan ís.

„Sama hvort mönn­um lík­ar það bet­ur eða verr hef­ur fólk rétt til þess að tjá sig um grund­vall­arþætti í heims­mynd sinni, eins og að karl­ar geti ekki fætt börn. Þar á fólk ekki að venj­ast því að hinn eða þessi arm­ur rík­is­valds­ins sigi á það lög­reglu fyr­ir skoðun, sem hef­ur vel að merkja ekki verið um­deild þar til á allra síðustu árum.”

Óverjanleg ummæli

Snorri endar grein sína á þeim orðum að tjáningarfrelsi sé meginþáttur í frjálsu samfélagi en nútíminn hafi útvegað nýjar og ísmeygilegar leiðir til að grafa undan því.

„Í því ljósi þarf greini­lega að árétta að sann­leik­ur­inn verður ekki til hjá rík­is­vald­inu og það er ekki hlut­verk þess að fram­fylgja hon­um. Það er síðan ann­ar mis­skiln­ing­ur að stuðlað verði að fé­lags­leg­um fram­förum með því að neyða fólk með lög­reglu­valdi til að samþykkja hug­mynd­ir sem mis­bjóða skyn­semi þess og lífs­sýn. Slíkt kerfi hef­ur aldrei gefið góða raun.“

Eftir að greint var frá kærunni í lok nóvember sagði Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78, að samtökin myndu ekki sitja undir því aðgerðarlaus þegar einstaklingur sem um margra missera skeið hafi haldið uppi lygum um hinsegin fólk og sérstaklega trans fólk.

„Hann fullyrðið í einum ummælum að Samtökin ’78 séu að grooma eða tæla börn. Í öðrum ummælum kallar hann trans konur barnaníðinga. Við teljum að slík ummæli séu óverjanleg og vega einfaldlega að öryggi starfsfólki okkar, sjálfboðaliða og alla hinsegin fólks samfélaginu,“ sagði Helga í samtali við Vísi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sofnaði undir stýri og keyrði á gangandi vegfarendur

Sofnaði undir stýri og keyrði á gangandi vegfarendur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eru matvöruverslanir að eiga verðsamráð í gegnum fjölmiðla? – Samkeppniseftirlitið varar fyrirtæki við

Eru matvöruverslanir að eiga verðsamráð í gegnum fjölmiðla? – Samkeppniseftirlitið varar fyrirtæki við
Fréttir
Í gær

Segir Íslendinga hafa minni áhyggjur af öryggismálum en hinar Norðurlandaþjóðirnar

Segir Íslendinga hafa minni áhyggjur af öryggismálum en hinar Norðurlandaþjóðirnar
Fréttir
Í gær

Lögregla beitti rafbyssu á vopnaðan mann í gær – Fyrsta sinn sem það gerist

Lögregla beitti rafbyssu á vopnaðan mann í gær – Fyrsta sinn sem það gerist
Fréttir
Í gær

Kirkjunni barst óvæntur 50 milljóna króna arfur – „Mjög fal­leg og hlý til­hugs­un að fólki þyki svona vænt um kirkj­una“

Kirkjunni barst óvæntur 50 milljóna króna arfur – „Mjög fal­leg og hlý til­hugs­un að fólki þyki svona vænt um kirkj­una“
Fréttir
Í gær

Afkastamiklir hnuplarar – Stálu fyrir 700 milljónir

Afkastamiklir hnuplarar – Stálu fyrir 700 milljónir