42 prósent vilja sjá ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins samkvæmt nýrri könnun Gallup. Þetta er þrefalt fleiri en vilja sjá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks.
55 prósent voru sátt með úrslit alþingiskosninganna þann 30. nóvember en aðeins 27 prósent ósátt. 18 prósent voru hvorki sátt né ósátt. Nokkur munur var á kynjunum hvað þetta varðar en 60 prósent kvenna voru sátt en aðeins 50 prósent karla.
Ánægðastir voru kjósendur Samfylkingar og Viðreisnar, það er 90 prósent, en þar á eftir koma kjósendur Flokks fólksins með 82 prósent. Aðeins fleiri kjósendur Miðflokks voru sáttir en ósáttir, það er 39 prósent á móti 33. Ósáttastir voru kjósendur Pírata og Vinstri grænna, aðeins 24 og 18 prósent, en báðir flokkar hurfu af þingi.
Einnig var spurt hvernig ríkisstjórn, þriggja flokka eða fleiri, svarendur vildu sjá. Langflestir, 42 prósent, vildu sjá ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins sem er einmitt sú sem verið er að reyna að mynda þessa dagana.
74 prósent Samfylkingarfólks vilja sjá þessa ríkisstjórn og 53 prósent kjósenda Viðreisnar og Flokks fólksins. Þetta var einnig vinsælasta stjórnarformið hjá kjósendum Sósíalistaflokksins og Pírata.
Næst flestir nefndu ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks, en þó aðeins 14 prósent. 51 prósent Sjálfstæðismanna vilja þess konar stjórn, 41 prósent Miðflokksmanna en aðeins 6 prósent Viðreisnarfólks.
Í þriðja sæti var ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Framsóknarflokks þó hún sé ekki möguleg meirihlutastjórn. 29 prósent Framsóknarmanna vildu sjá þessa stjórn ásamt 17 prósent Samfylkingarfólks og 12 Viðreisnarfólks. Þetta stjórnarform var vinsælast hjá kjósendum Vinstri grænna.
5 prósent vildu ríkisstjórn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar. 4 prósent Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Flokks fólksins. Einnig 4 prósent Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknarflokks þó hún sé ekki möguleg.
Könnunin var gerð 5. til 12. desember. Úrtakið var 1726 og svarhlutfallið 47,9 prósent.