Finnar hafa lengi markaðssett heimkynni jólasveinsins í Rovaniemi í Lapplandi. Um 65.000 manns búa í bænum, sem er rétt sunnan við heimskautsbaug og 900 km norðan við Helsinki.
En íbúarnir eru orðnir þreytti á jólasveininum og því sem honum fylgir því á síðasta ári voru 1,2 milljónir gistinótta ferðamanna í bænum. Það var 30% aukning frá árinu áður.
Ástæðan getur verið að byrjað var að fljúga til bæjarins frá 13 nýjum bæjum og borgum. Þeirra á meðal eru Amsterdam, Berlóin, Dublin, London, Madríd og París.
Þrátt fyrir að bærinn sé ekki stór, þá er flugvöllurinn þar sá næst stærsti í Finnlandi.
Euronews skýrir frá þessu og segir að í bænum sé skemmtigarðurinn Santa Claus Village. Það er hægt að fara í hreindýrasleðaferðir, heimsækja ísbar og auðvitað hitta manninn sem þetta snýst allt um – jólasveininn.
En bæjarbúar eru nú farnir að mótmæla þessum mikla ferðamannastraumi og áhrifum hans og segja að ferðamennirnir séu orðnir of margir. Þessi mikli fjöldi ferðamanna hefur haft í för með sér að sífellt fleiri íbúðir eru gerðar að orlofsíbúðum fyrir ferðamenn og það veldur hækkandi fasteignaverði.
En auðvitað eru sumir sáttir við ferðamannastrauminn og má þar nefna hóteleigendur, veitingastaði, minjagripaverslanir og aðra sem hafa lifibrauð sitt af ferðamönnum.