Sky News segir að Edwards, sem starfaði áður sem lögreglumaður í Wales, þurfi að sitja í fangelsi í 12 ár hið minnsta áður en hann á möguleika á reynslulausn. Hann tapaði nýlega áfrýjun á dómi sínum.
Móðir hans Rebekah Edwards var nýlega dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa hindrað framgang réttvísinnar með því að grafa farsíma sonar síns í gröf fjölskyldukattarins. Edwards hafði beðið hana um að gera þetta til að lögreglan fyndi ekki símann. Hún getur sótt um reynslulausn eftir eitt ár.
Lögreglan gerði húsleit heima hjá Edwards í febrúar á síðasta ári. Hald var lagt á nokkur raftæki en Edwards var ekki samstarfsfús og neitaði að skýra frá aðgangsorðunum að þeim.
Í júlí á síðasta ári fékk lögreglan upplýsingar um að Rebekah væri með tvo farsíma í fórum sínum og að hún hefði spurt son sinn hvað hún ætti að gera við þá. „Grafðu þann svarta,“ svaraði Edwards.
Hún afhenti lögreglunni símana að lokum en þegar hún var spurð hvort hún hefði grafið síma í garðinum, sagði hún það rétt vera og að hún hefði grafið hann með kettinum. Hún sagði að sá sími væri svartur með brotinn skjá.
Saksóknari sagði fyrir dómi að ekki hafi verið hægt að rannsaka símann því hann hafi verið svo illa farinn.