Á myndinni sést maður setja eitthvað sem virðist vera lík, vafið inn í lak, í skott bíls í þorpinu Calle Norte í Tajueco á Spáni.
Daily Mail greinir frá þessu.
Að sögn lögreglu hefur myndin reynst mikilvæg við rannsókn málsins og leitt til handtöku tveggja einstaklinga og líkfundar.
Það var í nóvember 2023 að karlmaður, ættaður frá Kúbu, hvarf sporlaust og hóf lögregla eftirgrennslan þegar bróðir hans tilkynnti um hvarfið.
Maðurinn er sagður hafa ferðast til Soria-héraðs á Spáni í fyrravetur til að leita að eiginkonu sinni sem búsett var á svæðinu. Hann er sagður hafa fundið konu sína en komist þá að því að hún var byrjuð að búa með öðrum manni, fertugum nágranna sínum nánar tiltekið.
Grunar lögreglu að eiginkonan og ástmaðurinn hafi í sameiningu lagt á ráðin um að drepa eiginmanninn. Hafa þau bæði verið handtekin í tengslum við rannsókn lögreglu og sitja þau í gæsluvarðhaldi.
Lögregla hefur ekki gefið út um það hvort það sé ástmaðurinn sem sést á meðfylgjandi mynd en lögregla segir að hún hafi byrjað að beina sjónum sínum að ástmanninum eftir að henni barst ábending um myndina.
Maðurinn virðist hafa verið bútaður í sundur eftir morðið og fannst hluti af líkamsleifum hans í kirkjugarði í bænum Andaluz í síðustu viku.