fbpx
Miðvikudagur 25.desember 2024
Pressan

Þetta er aðalástæðan fyrir að tennurnar verða gular

Pressan
Þriðjudaginn 24. desember 2024 12:30

Ætli hún sé komin með gular tennur? Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að þú burstir tennurnar og notir tannþráð tvisvar á dag, þá geta tennurnar orðið gular með tímanum. Ástæðan fyrir því er líklega eitthvað sem þú hefur aldrei leitt hugann að. Þess utan er þetta eitthvað sem er erfitt að stöðva.

Þegar við hugsum um gular tennur, þá tengjum við þær oft við mataræði eða lélega tannhirðu. Það er auðvitað rétt að sumar matar- og drykkjartegundir á borð við kaffi, te og rauðvín geta ýtt undir mislitar tennur. Þessar drykkjartegundir innihalda litarefni sem bindast auðveldlega við tennur og skilja eftir sig gulan lit.

Koffínlaust kaffi og te getur einnig valdið gulum tönnum því vandinn er ekki bara í koffíninu, heldur einnig í litarefnunum.

En þótt þú forðist þessar litasprengjur algjörlega, þá byrja tennurnar að gulna með tímanum.

Sérfræðingar segja að ein helsta ástæðan fyrir gulum tönnum sé svolítið sem við ráðum ekki við – aldur. Með aldrinum slitnar glerungurinn smám saman. Undir honum er dentín sem er gulleitt. Þegar glerungurinn þynnist, byrjar dentínið að skína í gegn og því líta tennurnar út fyrir að vera gular.

Þess utan skipta erfir máli. Sumir fæðast með þykkan og sterkan glerung en aðrir með þunnan glerung og eru því líklegri til að fá mislitar tennur.

Það er auðvitað ekki hægt að stöðva öldrunarferlið eða breyta erfðum en það er hægt að gera ákveðna hluti til að halda aftur af mislituninni. Þú getur forðast að drekka kaffi, te, rauðvín og dökka gosdrykki. Notkun á vörum, sem vernda glerunginn, er einnig gagnlegt, til dæmis flúortannkrem. Einnig er gott að láta hreinsa og pússa tennurnar öðru hvoru hjá tannlækninum.

En þótt þú gerir þetta, þá mun aldurinn að lokum hafa sigur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Pabbinn vildi sýna syninum hvað fátækt er – Orð drengsins komu honum algjörlega í opna skjöldu

Pabbinn vildi sýna syninum hvað fátækt er – Orð drengsins komu honum algjörlega í opna skjöldu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hér á aldrei að hafa jólatréð – Fallegasti staðurinn getur verið sá hættulegasti

Hér á aldrei að hafa jólatréð – Fallegasti staðurinn getur verið sá hættulegasti
Pressan
Fyrir 3 dögum

13 ára drengur gerði magnaða uppgötvun þegar hann var í gönguferð

13 ára drengur gerði magnaða uppgötvun þegar hann var í gönguferð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skógarbjörn varð 58 ára föður og afa að bana í furðulegu slysi

Skógarbjörn varð 58 ára föður og afa að bana í furðulegu slysi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stólpagrín gert að jólaljósum bæjarins – Líkjast nærfötum á þvottasnúru

Stólpagrín gert að jólaljósum bæjarins – Líkjast nærfötum á þvottasnúru
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fundu 76 barnslík – Bringan hafði verið skorin upp á þeim öllum

Fundu 76 barnslík – Bringan hafði verið skorin upp á þeim öllum