fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Pressan

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Pressan
Miðvikudaginn 11. desember 2024 08:00

Theodor Lund

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nei takk,“ sagði Tik-Tok-maðurinn þegar honum var boðið að eiga lokaorðið í dómsalnum áður en dómur var kveðinn upp yfir honum.

Þetta voru væntanlega síðustu orðin sem almenningur heyrði frá honum í langan tíma. Eystri-Landsréttur í Danmörku dæmdi hann til einnar þyngstu refsingarinnar sem hægt er í Danmörku. Hann var dæmdur til ótímabundinnar fangelsisvistar.

Þessari refsingu er beitt þegar sérstaklega hættulegir afbrotamenn eru dæmdir.

Tik-Tok-maðurinn heitir nú Theodor Lund en hét áður Mikkel Bentsen. Hann breytti nafni sínu eftir að undirréttur í Kaupmannahöfn dæmdi hann sömuleiðis til ótímabundinnar fangelsisvistar og sá Eystri-Landsréttur enga ástæðu til að milda dóminn.

Ekstra Bladet segir að Lund, sem er 32 ára, hafi varla sýnt svipbrigði þegar dómurinn var kveðinn upp. Einu sýnilegu svipbrigðin voru að hann gnísti tönnum og beit sig í vörina.

Viðbrögðin voru önnur í dómsalnum en þar voru nokkur af fórnarlömbum hans og mátti heyra þær varpa öndinni léttar.

Lund var sakfelldur fyrir fimm nauðganir, tvær nauðganir á barnungum stúlkum og eina nauðgunartilraun. Þess utan var hann dæmdur fyrir sérstaklega grófa nauðgun og grófa árás á barnunga stúlku. Hann var einnig sakfelldur fyrir kynmök við barn, fjölda kynferðisbrota af öðru tagi en samfarir og ofbeldi og hótanir.

Málið hófst af alvöru 2021 þegar lögreglan í Kaupmannahöfn handtók hann. Þá höfðu rúmlega 50 konur og stúlkur kært hann fyrir grófar nauðganir, kynferðisbrot, hótanir og kúgun. Konurnar og stúlkurnar höfðu komist í samband við hver aðra í Facebookhópi sem kallaðist „Fórnarlömb Mikkel“.

Hann notaði samfélagsmiðla til að komast í samband við ungar stúlkur og konur. Hann þóttist oft vera starfsmaður fyrirsætuskrifstofu og væri að leita að fyrirsætum. Með þessu tókst honum oft að lokka þær til að senda sér myndir sem hann nýtti sér síðan.

Sum fórnarlömbin segja að hann hafi neytt þær til að framkvæma kynferðislega draumóra hans ef hann nauðgaði þeim ekki.

Viðurnefnið Tik-Tok-maðurinn fékk hann vegna þess að hann notaði samfélagsmiðla svo mikið til að komast í samband við fórnarlömbin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir að þess vegna eigi fólk að drekka heitt vatn á hverjum morgni

Læknir segir að þess vegna eigi fólk að drekka heitt vatn á hverjum morgni
Pressan
Fyrir 2 dögum

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Eru gulir blettir á koddanum þínum? Þeir eru skýr aðvörun

Eru gulir blettir á koddanum þínum? Þeir eru skýr aðvörun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft áttu að skipta á rúminu þínu?

Hversu oft áttu að skipta á rúminu þínu?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru þrír stærstu áhættuþættirnir þegar kemur að heilabilun

Þetta eru þrír stærstu áhættuþættirnir þegar kemur að heilabilun