Arnar Grétarsson gæti verið að landa starfi í Danmörku en samkvæmt Dr. Football hlaðvarpinu er hann á blaði hjá Kolding í Danmörku.
Kolding leitar að þjálfara og er Arnar sagður einn af þremur sem kemur til greina.
Arnar hefur verið án starfs eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Val í sumar en gæti nú haldið til Danmörku.
„Arnar er í mixinu þarna,“ sagði Hjörvar Hafliðason um stöðu mála.
Koldin er í næst efstu deild og situr liðið í sjöunda sæti deildarinnar en Arnar gæti nú fengið starfið.
Arnar var sterklega orðaður við HK í Lengjudeildinni en félagið ákvað að ráða Hermann Hreiðarsson eftir viðræður við Arnar og fleiri aðila.
Þessi öflugi þjálfari hefur starfað erlendis og meðal annars þjálfað lið í Belgíu en einnig verið sem yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK Aþenu og Club Brugge.