fbpx
Miðvikudagur 05.febrúar 2025
Fókus

Jólalestin mun keyra sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í 30. skiptið

Fókus
Föstudaginn 6. desember 2024 14:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Engin jól eru fullkomin án Jólalestar Coca-Cola – hið sanna tákn um upphaf jólahátíðarinnar. Í 30 ár hefur þessi einstaka og hátíðlega lest glatt íbúa höfuðborgarsvæðisins og orðið ómissandi hluti aðventunnar.

Jólalestin mun keyra sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í 30. skiptið og hún leggur af stað á laugardaginn kl.17:00 frá höfuðstöðvum Coca-Cola að Stuðlahálsi – jólalegri en nokkru sinni fyrr. Hún keyrir um helstu hverfi höfuðborgarinnar og endar sinn árlega hring aftur á Stuðlahálsi.

Lestin mun stoppa stutt við Spöngina, Mini Garðinn í Skútuvogi og við Hamborgarjólatréð á Miðbakka þar sem kór Öldutúnsskóla syngur hið gamla og góða Coca-Cola jólalag, „I´d like to buy the world a Coke“ og „Prettyboi um jólin”  með PATR!K. Síðan heldur hún leið sinni áfram um höfuðborgarsvæðið.

Það dugar ekkert minna en lögreglufylgd og Hjálparsveit Skáta og er Coca-Cola þeim afskaplega þakklát fyrir aðstoðina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir því til fólks að sýna aðgát og koma ekki of nálægt lestinni enda er hún miklu fallegri og öruggari í smá fjarlægð.

Hægt er að fylgjast með staðsetningu lestarinnar í rauntíma á www.jolalestin.is. Þannig geta þeir sem vilja berja hana augum fylgst með staðsetningu hennar heima í hlýjunni og farið svo út þegar hún nálgast.

„Heimurinn þarf fleiri jólasveina …“

Jólaherferð Coca-Cola er alltaf einstök og á hún sérstakan stað í hjörtum landsmanna. Heimurinn þarf nefnilega á fleiri jólasveinum að halda og það er áhersla Coca-Cola þessa jólahátíðina. Hátíðarnar eiga að snúast um kraft kærleiks og góðverka og mikilvægi þess að njóta hátíð ljóss og friðar með sínum nánustu.

Þessi lang besta auglýsing allra tíma er 53 ára gömul og hún syngur í huga og hjörtum landsmanna:

Jólaauglýsingin frá 1995, Holidays are coming, hóf göngu sína þegar fyrsta jólalestin keyrði af stað og hefur verið sýnd í sjónvarpinu á Íslandi á hverju ári síðan 1995:

Jólaauglýsing Coca-Cola í ár minnir okkur á að við við getum öll verið jólasveinar og glatt hvort annað og það eru nefnilega  litlu hlutirnir sem geta skipt svo miklu máli:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ívar: „Það er búið að taka þetta viðtal út af netinu og ég þakka guði fyrir það“

Ívar: „Það er búið að taka þetta viðtal út af netinu og ég þakka guði fyrir það“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fræðsluskot Óla tölvu: Svona breytir gervigreindin frægu málverki

Fræðsluskot Óla tölvu: Svona breytir gervigreindin frægu málverki
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ljósbrot hlaut aðalverðlaunin í Gautaborg

Ljósbrot hlaut aðalverðlaunin í Gautaborg
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Massaður hálf nakinn lögmaður sem gefur ekkert eftir

Vikan á Instagram – Massaður hálf nakinn lögmaður sem gefur ekkert eftir