Tilkynnt var fyrr í dag að Bjarni Benediktsson sem gegnir embætti matvælaráðherra í þeirri starfsstjórn situr nú við völd á Íslandi hafi gefið út leyfi til veiða á langreyðum og hrefnum til næstu fimm ára. Hvalur hf. sem er í eigu Kristjáns Loftssonar fær leyfi til að veiða langreyðar og fyrirtækið Tjaldtangi til að veiða hrefnur. Óhætt er að segja að miðað við viðbrögð á samfélagsmiðlum séu nokkuð skiptar skoðanir meðal Íslendinga á þessari ákvörðun Bjarna en hver viðhorfin eru meðal meirihluta þjóðarinnar skal ósagt látið.
Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins er mjög ánægður:
Það sama verður ekki sagt um Andrés Inga Jónsson sem var þingmaður Pírata en náði ekki endurkjöri í alþingiskosningunum á laugardaginn:
Þarna vísar Andrés Ingi til þess að Bjarni situr í starfsstjórn og kosningar eru nýyfirstaðnar. Almennt hefur verið litið svo á að ráðherrar í starfsstjórn taki engar stórar ákvarðanir sem gilda til lengri tíma heldur eigi bara að vera til staðar til að tryggja að það sé ríkisstjórn í landinu. Í nýlegri grein á Vísindavef Háskóla Íslands sagði Hafsteinn Þór Hauksson dósent í lögfræði við skólann að þrátt fyrir þetta séu engar stjórnskipunarreglur sem takmarki valdheimildir ráðherra í starfsstjórnum.
Það kemur eflaust engum á óvart að Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness er mjög ánægður með Bjarna:
Meðal annarra ummæla á samfélagsmiðlum þar sem lýst er yfir ánægju með ákvörðun Bjarna eru til dæmis:
„Húrra, húrra Hvalveiðar á ný.“
„Virkilega góðar fréttir.“
„Nú verður fyrst gaman.“
„Frábærar fréttir, áfram Bjarni.“
En finna má einnig fjölda ummæla þar sem óánægju og andstöðu er lýst yfir vegna ákvörðunar Bjarna. Meðal þeirra sem láta heyra í sér er Helga Vala Helgadótttir lögmaður og fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar:
Þorsteinn V. Einarsson kynjafræðingur er ekki sáttur eins og færsla hans á X ber með sér:
Pottþett tilviljun að þetta sé tilkynnt eftir kosningar. Hvernig er hægt að vera svona? Og er lögreglan ekkert að rannsaka þetta? Vonandi er Sjálfstæðisfólk stolt núna. Alvöru gæði. Flott. Gott. pic.twitter.com/uHSbJLr5Gz
— Þorsteinn V. (@thorsteinnv__) December 5, 2024
Fleiri lýsa óánægju sinni yfir á X:
Það sem ég fíla við @Bjarni_Ben er að hann er búinn að owna það að vera skúrkur. Hann þykist ekkert vera annað. Leyfir hvalveiðar í kjölfar spillingarmáls. Lýgur, svindlar, brýtur lög, svíkur undan skatti. Ræður vini og vandamenn fram yfir hæfara fólk. Allt auglýst eða opinbert.
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) December 5, 2024
Einna harðorðastur er Einar Steingrímsson stærðfræðingur og háskólakennari:
„Síðasti séns fyrir Bjarna að senda fokkmerki til þjóðarinnar.“
Meðal annarra ummæla þar sem óánægju er lýst má til dæmis nefna.
„Langreyður vegur 40 til 70 tonn og það er alls ekki auðvelt að veiða slíkt dýr. Það má líkja veiðunum á langreyðum við að drepa hreindýr með boga og ör með sprengioddi, ör sem dræpi ekki samstundis í um þriðjungi tilfella og hátt hlutfall dýra þyrfti að heyja langt dauðastríð helsærð. Ef að ríki í Afríku stæði svona illa að fílaveiðum væri það fordæmt út um allan heim. “
„Auðvitað varð að bíða fram yfir kosningar með að klára plottið, en núna sýnir BB sitt rétta andlit.“
Það virðist því nokkuð ljóst að í þessu máli eins og svo mörgum öðrum eru skoðanir skiptar meðal íslensku þjóðarinnar