fbpx
Miðvikudagur 05.febrúar 2025
Fókus

„Sorgin getur hellst yfir okkur upp úr þurru, eins og risastór alda eða fljóðbylgja“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. desember 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 „Jólin geta verið tilfinningaríkur tími, enda tími samveru með fjölskyldu og ástvinum. Það getur því verið einstaklega erfitt þegar við förum í gegnum þennan tíma ársins eftir að missa ástvin.

Þegar við erum nýbúin að upplifa ástvinamissi getur verið erfitt að vita hvernig líkami og hugur bregst við álagi eins og því álagi sem fylgir undirbúningi jóla. Sorgin getur hellst yfir okkur upp úr þurru, eins og risastór alda eða fljóðbylgja og okkur finnst við vera að drukkna í erfiðum tilfinningum og upplifunum,“

segir Anna Sigurðardóttir, sálfræðingur, sérfræðingur í klíniskri sálfræði fullorðinna og eigandi Samkenndar Heilsuseturs, í grein sinni á Vísi.

 „Sum upplifa að það sé stutt í tárin og verða viðkvæmari, finna fyrir auknum pirring, reiði, kvíða eða áhyggjum yfir því hvernig þeim muni líða eða hvort þau komist í gegnum þetta tímabil. Líkamleg einkenni eins og orkuleysi, minni matarlyst og þreyta eru einnig algeng,“ segir Anna.

Anna Sigurðardóttir

Hún segir allar þessar tilfinningar þó eðlilegar og flest þau sem hafa misst ástvin upplifa þessa líðan, í mismiklu mæli þó. Bendir Anna á eftirfarandi atriði sem gott er að hafa í huga næstu daga og vikur:

Settu mörk

Gefðu þér leyfi til að vera og gera eins og þér hentar best, í samvinnu við þitt nánasta fólk. Forgangsraðaðu verkefnum eftir mikilvægi, fáðu aðstoð og vertu sparsöm/samur á orku þína og tíma eftir getu hvers dags. Þetta er ekki rétti tíminn til að setja sjálfan sig í síðasta sæti til að þóknast öðrum. Vegna þeirra erfiðu og óútreiknanlegu einkenna sem fylgja sorginni, er mikilvægt að þú sért í opnum samskiptum við fólk sem þú treystir fyrir líðan þinni, en þér finnist þú ekki þurfa setja upp leikrit um að allt sé í lagi.

Hvíldu þig

Sorgarferlið getur verið óútreiknanlegt, sérstaklega þegar stutt er síðan við upplifðum missi. Þú gætir upplifað að sorgin hellist yfir þig á ólíklegustu stundum og að það valdi þér kvíða eða depurð hversu óstjórnleg hún er. Það er því gott að gefa sér tíma fyrir sig í ró og næði, t.d slaka á með kaffibolla, sitja í ró með vini, farir í göngutúr eða lesir góða bók.

Einnig getur verið að það henti þér að hvílast á einhvern hátt einn með hugsanir þínar og tilfinningar. Ef þú upplifir aukna vanlíðan er gott að taka eina stund í einu og reyna að vera til staðar með líðan þinni. Reyndu að hægja á þér með því að anda nokkrum sinnum djúpt og taktu eftir því sem er að gerast. Þessi mikla vanlíðan mun ekki endast að eilífu því tilfinningar koma í bylgjum og líða hjá.

Leyfðu þér að gráta

Að gráta getur sumum fundist hjálplegt og er eðlilegur hluti sorgarinnar. Það er engin þörf á að halda niðri grátinum vegna þess að „jólin eiga að vera tími gleðinnar“. Tárin eru vitnisburður um hversu mikið þú elskar og saknar þess ástvinar sem þú misstir og þá ást þarf ekki að fela. Grátur losar jafnframt um tilfinningalega spennu sem safnast upp í líkamanum. Það er því gott ráð að gráta ef þörf er á og ef það þreytir þig, hvíldu þig… ef þú þarft að sofa, þá sofðu… og ef þú vilt brosa, geturðu brosað líka.

Heiðraðu tilfinningar þínar. Þú þarft ekki að fórna þér bara af því að það eru jól. Gefðu þér það sem þú þarft og láttu aðra sjá um þig.

Samstaða

Ef fjölskyldan öll upplifði missi þá er gott að hjálpast að við að veita hvort öðru það sem hver og einn þarf hverju sinni. Gleðileg jól eru kærleiksrík jól þar sem við gefum okkur sjálfum og hvort öðru leyfi til að vera með tilfinningum okkar og upplifunum og mætum okkur með skilning og umhyggju.

Ef vanlíðan þín verður þér ofviða þá skaltu leita þér hjálpar hjá einhverjum sem þú treystir eða hringja í Hjálparsíma Rauða krossins: sími 1717.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ljósbrot hlaut aðalverðlaunin í Gautaborg

Ljósbrot hlaut aðalverðlaunin í Gautaborg
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Massaður hálf nakinn lögmaður sem gefur ekkert eftir

Vikan á Instagram – Massaður hálf nakinn lögmaður sem gefur ekkert eftir
Fókus
Fyrir 3 dögum

Páll Óskar sýnir umbúðirnar eftir kjálkabrotið – „Ég er ótrúlega hissa“- Myndband

Páll Óskar sýnir umbúðirnar eftir kjálkabrotið – „Ég er ótrúlega hissa“- Myndband
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stebbi JAK gerir upp árásina: „Það voru allavegana tólf manns sem voru að reyna að valda mér skaða og náðu því töluvert“

Stebbi JAK gerir upp árásina: „Það voru allavegana tólf manns sem voru að reyna að valda mér skaða og náðu því töluvert“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð FKA

Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð FKA
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kirkjusókn ungra íslenskra karlmanna að aukast – Skipuleggja messuferðir á Snapchat og lesa biblíuna

Kirkjusókn ungra íslenskra karlmanna að aukast – Skipuleggja messuferðir á Snapchat og lesa biblíuna