fbpx
Föstudagur 27.desember 2024
Eyjan

Segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa naflaskoðun og harmar stuðning við borgarlínu – „Fólki finnst þetta vera dýrt draumórarugl“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. desember 2024 19:00

Kjartan Magnússon - Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir kosningarúrslitin vera slæm fyrir Sjálfstæðisflokkinn um leið og hann þakkar sjálfboðaliðum flokksins þá staðreynd að fylgistap hans varð ekki enn meira en raun ber vitni. Kjartan birtir grein um stöðu flokksins í Morgunblaðinu í dag og segir:

„Eðli­legt er að marg­ir velti fyr­ir sér stöðu og framtíð Sjálf­stæðis­flokks­ins eft­ir kosn­ing­arn­ar um liðna helgi. Flokk­ur­inn missti rúm­lega fimmt­ung fylg­is síns miðað við síðustu alþing­is­kosn­ing­ar og hlaut minnsta fylgi í sögu sinni eða 19,4%.

Það væri sjálfs­blekk­ing að láta eins og um kosn­inga­sig­ur væri að ræða. Hitt er svo annað mál að úr­slit­in eru mun skárri en skoðanakann­an­ir gáfu til kynna stærst­an hluta bar­átt­unn­ar. Lengi mæld­ist Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn með afar lítið fylgi og leit út fyr­ir að hann myndi bíða af­hroð í kosn­ing­un­um. Á tíma­bili stóð til að kjósa viku fyrr en raun­in varð eða 23. nóv­em­ber. Þann dag birt­ust þrjár skoðanakann­an­ir, sem sýndu að flokk­ur­inn hefði 14% fylgi að meðaltali.

Á loka­sprett­in­um fyr­ir kosn­ing­ar tókst Sjálf­stæðis­flokkn­um hins veg­ar að snúa vörn í sókn og auka fylgi sitt svo um munaði. Þann ár­ang­ur má þakka hundruðum sjálf­boðaliða, sem brugðust við á ög­ur­stundu og lögðust á eitt við að afla flokkn­um at­kvæða með því að hafa beint sam­band við þúsund­ir kjós­enda um allt land. Gam­an var að fylgj­ast með dugnaði og vinn­ugleði þess­ara sjálf­boðaliða og verður fram­lag þeirra seint fullþakkað.“

En hvað sem líður björgunarstarfi sjálfsboðaliða þá eru þetta þriðju kosningarnar í röð þar sem Sjálfstæðislokkurinn tapar fylgi. Segir Kjartan að slíkt endurtekið fylgistap kalli á allsherjar naflaskoðun innan flokksins. Telur hann rétt að leiðir til úrbóta sé ræddar af hreinskilni og hispursleysi.

Þarf að skipta um forystu?

Kjartan segir í grein sinni að samtöl í marga kjósendur leiði í ljós að þeir séu ósáttir við framgöngu flokksins varðandi skattamál og stuðning um hugmyndir um borgarlínuskatt. Einnig setji þeir spurningarmerki við forystu flokksins.

DV sló á þráðinn til Kjartans og freistaði þess að spyrja nánar út í þessu atriði. Var hann spurður hvort hann teldi tímabært að skipta um forystu í Sjálfstæðisflokknum.

„Það eru skiptar skoðanir um það. Það verður landsfundur í febrúar og það kemur örugglega til umræðu fyrir þann fund. Ég held að menn hafi bara sett það til hliðar fyrir kosningar. Eðlilegt að það verði rætt um það en ég held það verði skiptar skoðanir um það.“

Dýrt draumórarugl

DV spurði Kjartan jafnframt út í afstöðu hins almenna sjálfstæðismanns til borgarlínu, sem flokkurinn hefur stutt á landsvísu. Segir Kjartan að margir séu ósáttir við borgarlínuverkefnið.

„Ég held að mjög margir Sjálfstæðismenn séu ósáttir við þessa hugmynd um Borgarlínu og stuðning flokksins við hana. Það eru skiptar skoðanir, við borgarfulltrúarnir höfum lagst gegn þessum hugmyndum, þá sérstaklega hugmyndinni um að fjármagna hana með því að setja aukin gjöld á umferð í borginni, við erum nú þegar að borga einhver hæstu bensíngjöld og bifreiðaskatt í heimi og þetta borgarlínuverkefni er upp á einhverja hundruð milljarða. Hugmyndin er sú að skattleggja bílaeigendur fyrir þeim kostnaði og það hefur verið sýnt fram á að þessar hugmyndir eru mjög dýrar. Það væri hægt að efla almenningssamgöngur með öðrum og miklu ódýrari hætti. Svo koma tafir inn í þetta líka. Núna  er talað um árið 2031, vinstri menn hafa talað um þessa borgarlínu sem einhverja allsherjarlausn í samgöngumálum borgarinnar í 15 ár og það er alltaf verið að fresta þessu fokdýra verkefni. Í staðinn fyrir að bíða eftir borgarlínu fram á næsta áratug þá væri miklu raunhæfara að efla núverandi strætókerfi með ýmsum hætti, sem er miklu ódýrara, væri miklu betra og er hægt að gera á stuttum tíma. Ég heyri á hinum almenna Sjálfstæðismanni að fólki finnst þetta vera dýrt draumórarugl og skilja ekkert í þeim stuðningi sem borgarlínan og sú skammtheimta sem henni  á að fylgja hefur fengið hjá ákveðnum hluta flokksins.“

Kjartan segir að ef flokkurinn er á leið í stjórnarandstöðu, eins og líkur benda til, þá sé rétt að grípa tækifærið, taka á innri málum flokksins og skerpa stefnuna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Gagnrýna tíðar hækkanir á ofurlaunum borgarfulltrúa – „Af hverju gildir hið sama ekki um örorkubætur“

Gagnrýna tíðar hækkanir á ofurlaunum borgarfulltrúa – „Af hverju gildir hið sama ekki um örorkubætur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hvað verður um Framsóknarflokkinn? – Hver tekur við forystunni?

Orðið á götunni: Hvað verður um Framsóknarflokkinn? – Hver tekur við forystunni?