fbpx
Fimmtudagur 05.desember 2024
433Sport

Höfðar mál gegn eigandanum sem Jökull gagnrýndi harðlega – „Það segir nógu mikið um hann“

Helgi Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. desember 2024 09:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rob Couhig, fyrrum eigandi Wycombe, hefur höfðað rúmlega 10 milljóna punda skaðabótakröfu á hendur Reading og eiganda félagsins. Þetta staðfestir hann í samtali við The Sun.

Kínverski viðskiptamaðurinn Dai Yongge á Reading, sem nú spilar í ensku C-deildinni, en hann er afar umdeildur og vægast sagt óvinsæll á meðal stuðningsmanna þar sem staðan á félaginu er skelfileg og fjárhagurinn í rúst.

Yongge hafði samþykkt að selja Couhig Reading fyrir 30 milljónir punda í haust og virtist allt klappað og klárt. Á síðustu stundu neitaði Youngge hins vegar að skrifa undir. Það var eftir að Couhig hafði lánað félaginu 5 milljónir punda til að standa undir kostnaði á meðan kaupin gengu í gegn.

Couhig sækist eftir 800 þúsund pundum í kostnað og 9,5 milljónum punda í hugsanlega tapað fé. Þrátt fyrir þetta allt hefur Couhig alltaf haldið því fram að tilboðið sé enn á borðinu ef Yongge snýst hugur.

Couhig kveðst bera hag stjórans Ruben Selles og leikmanna Reading fyrir brjósti, hann vilji mest af öllu bjarga félaginu. „Ég vil frekar taka við félaginu en að vinna þetta skaðabótamál,“ er haft eftir Couhig í The Sun.

Ruben Selles. Getty Images

Jökull bar Yongge ekki vel söguna

Markvörðurinn Jökull Andrésson var á mála hjá Reading í fjölda ára en var mikið lánaður út á þeim tíma. Hann mætti í Íþróttavikuna hér á 433.is í haust og ræddi meðal annars Yongge og stöðuna á félaginu.

„Klúbburinn minn, þetta er einhver þvæla sem er í gangi þarna. Það er ekki búið að borga hita og rafmagn, oftast er ég ekki að fá launin mín á réttum tíma, sem er fáránlegt í þessu umhverfi,“ sagði Jökull í þættinum.

Jökull sagði stöðuna hjá Reading undanfarin ár hafa verið mjög skrautlega.

„Við höfum fengið mínus 12 stig undanfarin þrjú tímabil. Þegar ég kom til baka fyrsta daginn á undirbúningstímabilinu var enginn á staðnum. Það voru vanalega milljón manns þarna en þetta var bara draugabær. Það er bara búið að reka alla, það er enginn í vinnu. Við vorum í umspili um að komast upp í efstu deild fyrir 4-5 árum. Það er ruglað hvernig þetta hefur breyst.“

Svo barst Youngge í tal.

„Það er eitthvað að. Hann er búinn að setja tvo klúbba á hausinn, það segir nógu mikið um hann. Það er búið að koma fullt af fólki sem vill kaupa klúbbinn en hann vill bara selja hann á jafnmikið og Manchester United.

Það er eins og hann hafi gefist upp þegar við fórum ekki upp í efstu deild. Þá hætti hann að borga laun og almenna reikninga.“

Meira
Jökull talar opinskátt um skelfilegt ástand hjá vinnuveitendum sínum – „Það er bara búið að reka alla, það er enginn í vinnu“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Lygileg ummæli fyrir framan eiginkonu sína – „Mæti með rútu fulla af vændiskonum“

Sjáðu myndbandið: Lygileg ummæli fyrir framan eiginkonu sína – „Mæti með rútu fulla af vændiskonum“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Neikvæðu fréttirnar um hann halda áfram – Rifust heiftarlega í hálfleik

Neikvæðu fréttirnar um hann halda áfram – Rifust heiftarlega í hálfleik
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hættu við á síðustu stundu út af leikmanni Manchester United – Ekki allir í klefanum sáttir

Hættu við á síðustu stundu út af leikmanni Manchester United – Ekki allir í klefanum sáttir
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arne Slot án sex manna í ferðalaginu norður

Arne Slot án sex manna í ferðalaginu norður
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stjarnan nær óþekkjanleg í afar óvæntu hlutverki – Var á allra vörum fyrir ógeðfellt atvik á árum áður

Stjarnan nær óþekkjanleg í afar óvæntu hlutverki – Var á allra vörum fyrir ógeðfellt atvik á árum áður
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Luke Shaw aftur á meiðslalistann

Luke Shaw aftur á meiðslalistann