Fimm lögreglumenn munu taka sæti á Alþingi þegar það kemur saman eftir kosningar og líklega hafa þeir aldrei verið fleiri. Að venju eru lögfræðingar fjölmennasta stéttin á þingi.
DV leit yfir bakgrunn þeirra 63 þingmanna sem fengu náð fyrir augum kjósenda á laugardag. En 34 af þeim eru nýir þingmenn.
Athygli vekur að fimm þingmenn eru lögreglumenn. Það eru Vilhjálmur Árnason, Stefán Vagn Stefánsson, Karl Gauti Hjaltason sem kemur aftur inn á þing og þeir Víðir Reynisson og Grímur Grímsson sem koma nýir inn. Þá má nefna að fleiri þingmenn hafa starfað sem lögreglumenn á einhverjum tímapunkti. Meðal annars Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðmundur Ingi Kristinsson.
Einnig vekur athygli að þrír læknar taka sæti á þingi, allir nýir og allir í Samfylkingunni. Þau Alma Möller, Dagur B. Eggertsson og Ragna Sigurðardóttir. Þá eru einnig tveir íþróttakennarar, þau Ingibjörg Isaksen og Eiríkur Björn Björgvinsson.
11 lögfræðingar – Dagbjört Hákonardóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Eyjólfur Ármannsson, Sigríður Á. Andersen
6 stjórnmálafræðingar – Þórunn Sveinbjarnardóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Rósa Guðbjartsdóttir, Ingibjörg Davíðsdóttir, Halla Hrund Logadóttir
5 lögreglumenn – Víðir Reynisson, Vilhjálmur Árnason, Grímur Grímsson, Karl Gauti Hjaltason, Stefán Vagn Stefánsson
4 blaðamenn – Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jóhann Páll Jóhannsson, Sigmar Guðmundsson, Snorri Másson
4 kennarar – Eydís Ásbjörnsson, Jón Pétur Zimsen, Ingvar Þóroddsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir
4 verslunarmenn – Ragnar Þór Ingólfsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Sigurður Helgi Pálmason, Lilja Rafney Magnúsdóttir
3 læknar – Dagur B. Eggertsson, Ragna Sigurðardóttir, Alma Möller
3 hagfræðingar – Kristrún Frostadóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
3 viðskiptafræðingar – Jens Garðar Helgason, Bergþór Ólason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
2 íþróttakennarar – Eiríkur Björn Björgvinsson, Ingibjörg Isaksen
2 sálfræðingar – María Rut Kristinsdóttir, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
2 verkefnastjórar – Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir
1 leikari – Jón Gnarr
1 arkitekt – Logi Már Einarsson
1 lyfjafræðingur – Ólafur Adolfsson
1 stærðfræðingur – Pawel Bartoszek
1 rafiðnaðarmaður – Kristján Þórður Snæbjarnarson
1 kerfisfræðingur – Guðbrandur Einarsson
1 verktaki – Þorgrímur Sigmundsson
1 flugumferðarstjóri – Njáll Trausti Friðbertsson
1 líffræðingur – Sigurjón Þórðarson
1 heilbrigðisstarfsmaður – Jónína Björk Óskarsdóttir
1 mannfræðingur – Guðrún Hafsteinsdóttir
1 tómstunda og félagsmálafræðingur – Guðmundur Ari Sigurjónsson
1 bóndi – Þórarinn Ingi Pétursson
1 dýralæknir – Sigurður Ingi Jóhannsson