Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur er í hópi þeirra listamanna sem fá ekki krónu í listamannalaun í ár. Halldór greinir frá þessu á Facebook með eftirfarandi texta og mynd sem er vísun í tölvuleikinn GTA:
„0 mánuðir í listamannalaun!! Og svo úrskurðaður ófyndinn af húmoristunum í Kiljunni!! Wasted by Rannís og Kiljan!!“
Halldór ræðir málið við Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamann Vísis, í morgun þar sem hann tekur fram að það sé erfitt fyrir hann að kveinka sér. Hann segir þó að listaheimurinn lúti sömu lögmálum og allt annað á Íslandi.
„Ég hef fengið einhverja mánuði í listamannalaun í mörg ár. Þeir peningar frá skattgreiðendum hafa hjálpað mér mikið við að skrifa mín verk og ég kannski bara nýti tækifærið núna og þakka fyrir það. Ég hef aldrei tekið því sem sjálfsögðum hlut að fá þessi laun. Hins vegar skil ég vel að það séu skiptar skoðanir á þeim.“
Segir Halldór að ef maður vilji lifa af sem listamaður þurfi maður að fá listamannalaun.
„Og til að eiga öruggt aðgengi að þeim þarftu helst að fá verðlaun og viðurkenningar. Til að fá verðlaun og viðurkenningar þarftu að vera í náðinni.“
Athyglisvert viðtal við Halldór má lesa í heild sinni hér.