Bandarísk móðir, Cassi Nelson, birti átakanlega mynd af syni sínum sem fór eins og eldur í sinu um netheima. Nelson sagði að drengurinn, sem er í fyrsta bekk, hafi komið heim úr skólanum með fjórar blaðsíður af heimanámi. Hún birti mynd af honum tárvotum vinna verkefnið við eldhúsborðið.
UpWorthy greinir frá.
„Hann kemur ekki heim úr skólanum fyrr en klukkan fjögur. Hann þarf síðan að sitja við eldhúsborðið í klukkutíma til að sinna heimanáminu.
Ég þurfti að fara í annað herbergi svo hann gæti einbeitt sér. Litlu fótleggir hans voru á stöðugri hreyfingu, hann var með svo mikla orku og langaði bara að fara að leika.
Hjartað mitt brotnaði í þúsund mola þegar hann horfði á mig með tárvotum augum og spurði: „Mamma, þegar þú varst lítil áttir þú líka erfitt með að einbeita þér?“ Já, elskan mín, mamma átti líka erfitt með það,“ skrifaði Nelson og bætti við:
„Ég skil ekki hvernig fólk ætlast til þess að börn læri allan daginn í skólanum og komi heim og haldi áfram að læra!“
Yfir 94 þúsund manns hafa deilt færslunni áfram og hefur skapast áhugaverð umræða um heimanám og hvort það eigi að minnka það eða sleppa því alfarið.