Hann birti fallega færslu á Instagram í tilefni dagsins og deildi með tíu myndum af þeim í gegnum árin.
„Tíminn flýgur með Helgu Gabríelu. Í dag er sléttur áratugur síðan við Helga fórum á okkar fyrsta stefnumót. Það er óhætt að segja að uppfrá þeim degi hafi lukkan farið að snúast mér í vil og lífið byrjað að blómstra.
Hver dagur hefur verið öðrum betri með minni einu sönnu ást og það er alfarið henni að þakka að síðustu 10 ár hafa verið allra bestu ár lífs míns.
Börnin okkar, Logi, Máni og Birta eru sennilega besta sönnun þess hve gjöfult hjónaband okkar hefur verið en Helga hefur líka fært mér óendanlega gleði, festu og þann stuðning sem hefur gert mig að þeim manni sem ég er í dag. Þegar við kynntumst var ég sannarlega aðeins yngri og vitlausari en það eru forréttindi að fá að vera samferða henni og þroskast bæði og styrkjast.
Ég er svo sannarlega heppnasti maður í heimi og er minntur á það á hverjum einasta degi þegar ég vakna með Helgu Gabríelu mér við hlið,“ skrifaði Frosti.
Myndirnar má sjá hér að neðan, prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna og til að sjá fleiri myndir ýtir þú á örina til hægri.
View this post on Instagram
Frosti og Helga gengu í það heilaga í byrjun árs 2021.
Sjá einnig: Frosti og Helga gengu í það heilaga – Stjörnum prýtt brúðkaup og stórar fréttir