Nýr þáttur af Íþróttavikunni er kominn út en þættirnir koma út alla föstudaga á 433.is.
Gestur Helga Fannars og Hrafnkels Freys, umsjónarmanna þáttarins, þessa vikuna er uppistandarinn Jakob Birgisson.
Það er farið um víðan völl í þættinum en þétta fréttavika er að baki, þar sem meðal annars kom í ljós að skipt yrði um landsliðsþjálfara karla í knattspyrnu.
Horfðu á þáttinn í spilaranum eða hlustaðu á helstu hlaðvarpsveitum.