Amma Nadine Guðrúnar Yaghi, samskiptastjóra Play, er mjög hrifin af formanni Miðflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Nadine Guðrún er gift Snorra Mássyni, frambjóðanda Miðflokksins. Hún birti myndband af ömmu sinni tala um Sigmund Davíð á TikTok og endurbirti formaðurinn myndbandið á Twitter og skrifaði með:
„Hafi einhverjir haft efasemdir þá fæst staðfesting hér, ég er krútt!“
„Vissirðu að Sigmundur kyssti mig á kinnina. Ertu ekki búin að frétta af því?!“ sagði amma Nadine Guðrúnar við hana.
„Við hittum hann þegar við vorum að koma og hann sagði: „Æi, ég ætla bara að kyssa þig“ og kyssti mig á kinnina og ég held að ég hafi kysst hann líka á kinnina.“
Hún sagði að henni hefur alltaf þótt Sigmundur Davíð æðislegur og gullfallegur.
„Í gamla daga, hefurðu ekki séð myndir af honum þegar hann var mjór og ungur?“
Hafi einhverjir haft efasemdir þá fæst staðfesting hér, ég er krútt! pic.twitter.com/4WuAhiT0JJ
— Sigmundur Davíð (@sigmundurdavid) November 28, 2024