En í dag er árið ekki 1972 og við erum ekki í kvikmyndinni. Þess í stað erum við á Sikiley þar sem afhöggvið hestshöfuð fannst nýlega á landareign kaupsýslumanns eins. Því hafði verið komið fyrir á gröfu við heimili hans í Altofonte nærri Palermo.
En ekki nóg með því því samkvæmt frétt The Guardian þá fundust einnig kýrskrokkur og skrokkur kálfs hennar á staðnum.
Kaupsýslumaðurinn hafði strax samband við lögregluna og sagði henni að honum hafi áður borist hótanir og aðvaranir.
Lögreglan telur hugsanlegt að þar sem hann neitaði að greiða mafíunni verndargjald eða verða við öðrum kröfum hennar, hafi honum verið ógnað á þennan hátt.
Angela De Luca, bæjarstjóri í Altofonte, sagði að bæjarbúar séu í áfalli vegna málsins. „Mér brá mjög mikið. Ég skil ekki að einhver geti sýnt svona villimensku af sér,“ sagði hún og bætti við að þetta minni á miðaldir.
Málið hefur vakið mikla athygli á Sikiley og er mörgum illa brugðið. Nýlega var 20 mafíuleiðtogum sleppt úr fangelsi eftir að þeir höfðu lokið afplánun dóma sinna.
Á Sikiley eru afhöggvin dýrshöfuð og líkamshlutar dýra meðal þess sem mafían notar mest til að hræða fólk. Lögreglan segir að með þessu sé mafían að hræða fólk og oft snerti þetta fólk illa því það séu uppáhaldsdýrin þeirra sem eru drepin.