Nýlega voru þeir Harshkumar Ramanlal Patel, 29 ára Indverji, og Steve Shand, fimmtugur Bandaríkjamaður, sakfelldir fyrir að hafa ætlað að smygla fjölskyldunni til Bandaríkjanna. Voru þeir félagar í glæpahópi sem stóð fyrir umfangsmiklu smygli á Indverjum til Bandaríkjanna.
Sky News skýrir frá þessu og segir að indverska fjölskyldan hafi reynt að komast frá Kanada til Bandaríkjanna þann 19. janúar 2022. Óveður geisaði og frusu þau til bana. Þetta voru hjónin Jagdish og Vaishalibe og 11 ára dóttir þeirra, Vihangi, og 3 ára sonur þeirra, Dharmik.
Andy Luger, dómsmálaráðherra Minnesota, sagði að í réttarhöldunum yfir tvímenningunum hafi komið fram að smyglararnir taka fjárhagslegan ávinning fram yfir manngæsku og hafi sýnt hversu grimmdarlegt smygl á fólki er.
„Til að græða nokkur þúsund dollara, stofnuðu þessir smyglarar körlum, konum og börnum í mikla hættu sem endaði með skelfilegum og sorglegum dauða heillar fjölskyldu,“ sagði hann.
Patel og Shand eiga allt að 55 ára fangelsi yfir höfði sér en refsing þeirra verður ákveðin síðar.