Mauro Icardi framherji Galatasaray er ekkert að flækja hlutina, hann er að ganga í gegnum skilnað við Wanda Nara og hefur tekið saman við lögfræðinginn sem vinnur í því máli fyrir hann.
Icardi og Wanda slitu sambandi sínu í júlí í sumar eftir tíu ára samband. Icardi er 31 árs gamall en Wanda er 37 ára gömul.
Wanda var umboðsmaður Icardi um tíma en hún hefur verið mikið í fréttum fyrir léttklæddar myndir síðustu ár.
Wanda og Icardi eiga tvö börn saman Francesca, 8, og Isabella, 7 ára.
Núna hefur Icardi fundið ástina hjá Angela Burgos sem er lögfræðingur frá Kólumbíu, hún er þekkt þar í landi fyrir störf í sjónvarpi með fram lögmennsku.