Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er hrifinn af þeim starfi sem Elon Musk hefur verið falið að sinna fyrir ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Musk var ráðinn inn sem hagræðingakeisari (e. efficiency tsar) til að draga verulega úr útgjöldum ríkisins.
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Sigmundur sagði að hans mat væri að agaleysi hafi viðgengist of lengi í ríkisrekstrinum. Báknið hafi blásið út og nú þurfi að draga aftur úr því loftið. Hann nefndi sem dæmi heilbrigðiskerfið þar sem gera þurfi grundvallarbreytingar því það liggi fyrir að sama hversu miklu fjármagni sé dælt í kerfið þá muni það bara hverfa ofan í svartholið. Skattgreiðendur séu þar með ekki að fá það sem þeir ættu að vera að fá fyrir peninginn sinn.
„Stjórnkerfið, þegar það er komið inn á einhverja braut, þá vill það halda áfram á þeirri braut. Þess vegna þarf utanaðkomandi aðila að mínu mati. Til að taka til í þessi kerfi öllu. Það er það sem við gerðum í stóru aðgerðunum 2014 og 2015“
Þáttastjórnandi spurði þá hvort Sigmundur Davíð væri þá að tala um eins konar hagræðingaráðherra.
„Já! Ég fékk meira að segja lánað orð frá Ameríku, þar er talað um hagræðingakeisara, og við þurfum bara að finna þá. Ég hef meira að segja nefnt tillögur að slíkum mönnum, án þess að hafa talað við þá.“
Sigmundur nefndi sem dæmi Heiðar Guðjónsson, fjárfesti og fyrrum forstjóra Sýnar og Guðmund Fertram Sigurjónsson, forstjóra og stofnandi Kerecis.
„Þetta eru menn sem vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og hvað þarf til, og geta komið með utanaðkomandi sjónarhorn.“
Sigmundur segir að slíkir menn geti nálgast fjármál ríkisins af skynsemi. Og jafnvel ef slíkir aðilar myndi leggja til að taka upp nýjan gjaldmiðil, þó Sigmundur séu nú hrifinn af krónunni, þá myndi hann hlusta á slíka ráðgjöf og taka mark á henni – enda sé það hlutverk stjórnmálamanna að hlusta á rök, leggja á þau mat og svo ráðast í þær aðgerðir sem stjórnmálamenn treysta sér til að bera ábyrgð á.