Samkvæmt enskum blöðum í dag er það í ákveðnum forgangi hjá Ruben Amorim stjóra Manchester United að fá inn framherja.
Ensk blöð segja að Viktor Gyokeres framherji Sportins Lisbon sé efstur á blaði.
Gyokeres raðaði inn mörkum fyrir Amorim hjá Sporting. En ef United tekst ekki að sækja hann eru aðrir menn á blaði.
Sky í Þýskalandi segir að Omar Marmoush framherji Frankfurt og Victor Osimhen hjá Napoli séu næstir á blaði United.
Ef ekkert af þessu gengur eru þeir Randal Kolo Muani og Victor Boniface á blaði en þó ekki ofarlega á blaði.