fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024
Fréttir

Rússar sækja sér hermenn í Jemen

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. nóvember 2024 04:18

Rússneskir hermenn. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússar sækja sér hermenn í Jemen. Þeir eiga í leynilegu samstarfi við uppreisnarmenn Húta og aðstoða þeir Rússa við að verða sér úti um hermenn.

Áður höfðu fréttir borist af því að norðurkóreskir hermenn hafi verið sendir til að berjast með Rússum gegn Úkraínumönnum og nú hafa þeir snúið sér til Jemen til að fá nýja hermenn.

Financial Times segir að Rússar hafi fengið „mörg hundruð hermenn frá Jemen með því að nota vafasamar aðferðir, svik og jafnvel með þvingunum“.

Eru uppreisnarmenn úr röðum Húta sagðir aðstoða Rússa við þetta en þeir og Rússar eru sagðir eiga í leynilegu samstarfi. Í sumum tilfellum eru þeir sagðir hafa blekkt menn til að ganga til liðs við Rússa. Í staðinn fyrir aðstoðina eru Rússar sagðir hafa byrjað viðræður við Húta um að sjá þeim fyrir vopnum.

Financial Times ræddi við Jemena, sem féllust á að fara til Rússlands eftir að þeim hafði verið lofað vinnu, góðum launum og jafnvel rússneskum ríkisborgararétti.

Einn mannanna, Nabil að nafni, sagðist, gegn vilja sínum, hafa verið meðal 200 Jemena sem voru skráðir í rússneska herinn í september. Eftir komuna til Moskvu voru hann og fleiri neyddir til að ganga til liðs við herinn og sendir á vígvöllinn í Úkraínu.

Financial Times segir mennina vera „málaliða“ en líklega má efast um hversu gagnlegir þeir eru fyrir rússneska herinn. Sumir eru taldir hafa reynslu af hermennsku en langflestir hafa ekki hlotið neina þjálfun sem hermenn og margir þeirra vilja að sögn ekki vera í Rússlandi.

Það er rétt að hafa í huga að það eru ekki margir Jemenar sem hafa gengið til liðs við rússneska herinn fram að þessu en Norður-Kóreumenn hafa sent 10.000 til 12.000 hermenn til Rússlands.

En þessi frétt um Jemenana sýnir að Rússar eru stöðugt að leita að nýjum hermönnum og að samvinna Moskvuvaldsins og uppreisnarmanna í Jemen verður sífellt nánari.

Vladímír Pútín vill fyrir alla muni forðast að grípa til herkvaðningar því það yrði mjög óvinsælt meðal almennings ef gripið verður til hennar. Þess í stað er reynt að fá menn til að ganga til liðs við herinn með því að bjóða þeim hærri laun en áður eða með því að fá fanga til að fallast á að fara á vígvöllinn.

Rússar hafa mikla þörf fyrir hermenn því mannfallið í Úkraínu er gríðarlegt þessa dagana. Samkvæmt upplýsingum breska varnarmálaráðuneytisins missa Rússar rúmlega 1.000 hermenn á dag um þessar mundir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Gaf Díegó í jólagjöf

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Félag fasteignasala afhjúpaði fasteignasala sem er ákærður fyrir fjárdrátt – „Slík mál eru sem betur fer mjög sjaldgæf“

Félag fasteignasala afhjúpaði fasteignasala sem er ákærður fyrir fjárdrátt – „Slík mál eru sem betur fer mjög sjaldgæf“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Dómara misbauð og tók verjandann á teppið fyrir farsakennda málsvörn og galinn reikning

Dómara misbauð og tók verjandann á teppið fyrir farsakennda málsvörn og galinn reikning
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Birna átti von á 40 gestum í veislu þegar hún kom að læstum dyrum – „Hefði drepið einhvern þarna á BlackBox Pizzeria að láta mig vita?“

Birna átti von á 40 gestum í veislu þegar hún kom að læstum dyrum – „Hefði drepið einhvern þarna á BlackBox Pizzeria að láta mig vita?“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Díegó fundinn

Díegó fundinn