Hún sagðist hafa sofið hjá Tommy á meðan hann var í sambandi með Molly-Mae.
Molly-Mae og Tommy kynntust í fimmtu þáttaröð af Love Island árið 2019 og lentu í öðru sæti. Þau eignuðust dóttur, Bambi, í janúar 2023 og trúlofuðust á Ibiza síðasta sumar.
Molly-Mae greindi frá því á Instagram þann 14. ágúst síðastliðinn að sambandi þeirra væri lokið og er óhætt að segja að mörgum aðdáendum hafi brugðið, enda voru þau eitt ástsælasta par raunveruleikaþáttanna.
Háværar kjaftasögur hafa verið á kreiki um að Tommy hafi haldið framhjá Molly-Mae þegar hann var í ferðalagi með vinum sínum. Hann hefur harðneitað öllum ásökunum um framhjáhald.
Katy Robertson steig nýlega fram og sagðist vera konan sem Tommu hélt framhjá með. Hún sagði þau hafa sofið saman í maí í Dúbaí. Margir trúa henni ekki og telja hana vera að ljúga fyrir athygli og til að auglýsa OnlyFans-síðuna sína.
Þetta er ekki eina ástæðan fyrir því að Katy er afar umdeild þessa dagana. En í nýlegu viðtali, þar sem hún ræddi meðal annars um Tommy Fury, sagðist hún einnig vera ástæðan fyrir því að faðir hennar hafi misst vinnuna.
Faðir hennar vann sem deildarstjóri í grunnskóla og eftir vinnu lagði hann sig oft í sófanum í stofunni heima. Katy byrjaði að taka upp á því að stilla símanum sínum upp á sjónvarpið og taka myndband af honum. Hún kom inn í mynd og klæddi sig úr nærbuxunum og fleygði þeim síðan á hann, hún reyndi oftast að láta þær lenda á andliti hans.
Hún birti myndböndin á TikTok og fóru þau á mikið flug. Í kjölfarið komst einhver í skólanum yfir þau og var faðir hennar rekinn.
@clipsforyou2430 That is so wrong #therealitycheck #katy #katyrobertson #podcasts @The Reality Check Show ♬ original sound – clipsforyou
„Gerði hún HVAÐ á meðan hann svaf?!“ sagði einn. „Bíddu, hvað meinarðu?“ sagði annar, en margir áttu erfitt með að skilja hvernig manneskja gæti gert svona. Fleiri sögðu athæfið ógeðslegt og gagnrýndu hana harðlega.
Á meðan hún sagði söguna í viðtalinu brosti hún allan tímann, eins og þegar hún sagðist hafa sofið hjá Tommy Fury og eyðilagt samband hans í leiðinni.
Netverjar hafa fundið myndbönd sem staðfesta frásögn hennar. Það er óhætt að segja að netverjum líki illa við klámstjörnuna og er hún ekki sú vinsælasta þessa dagana.