Samkvæmt heimildum DV eru Ómar R. Valdimarsson lögmaður og fasteignasalinn Eva Margrét Ásmundsdóttir orðin par. Þau hafa sést saman við hin ýmsu tilefni, meðal annars á árshátíð Lögmannsstofunnar Valdimarsson í Berlín í byrjun mánaðarins, en þar var meðfylgjandi mynd tekin.
Parið mun hafa átt í sambandi um nokkurra vikna skeið og eru sögð fara sér hægt í þeim efnum. Ekki fer þó framhjá þeim sem til þeirra þekkja að innilegar tilfinningar hafa kviknað milli þeirra.
Ómar er landsþekktur lögmaður en Eva starfar sem löggiltur fasteignasali hjá Corisette – Iceland.