Sakarefnið hefur fengið marga til að klóra sér í kollinum því meint vanræksla fólst í því að hún kom ekki í veg fyrir að tíu ára gamall sonur hennar gengi rúman kílómtra frá heimili fjölskyldunnar í miðbæ Mineral Bluff sem er smábær í Georgríuríki. Þetta var um hábjartan dag og hafði sonurinn, Soren, gengið þessa leið margoft.
Brittany hafði fyrr um daginn farið með eldra barn sitt til læknis og var Soren heima á meðan. Hann ákvað að fá sér göngutúr í bæinn til að fara í matvörubúð en á ferðalagi sínu mætti hann konu sem, einhverra hluta vegna, spurði hann hvort það væri allt í lagi með hann.
Soren svaraði því til að hann væri í topp málum og hélt hann ferð sinni áfram. Konan hringdi samt sem áður í lögreglu sem fann drenginn í bænum og skutlaði honum heim. Nokkrum tímum síðar, þegar Brittany var búin hjá lækninum, komu lögreglumenn og tilkynntu henni að hún væri handtekin fyrir vanrækslu.
„Ég var í sjokki, þetta kom mér á óvart og ég skildi engan veginn hvað var í gangi,“ sagði Brittany í samtali við ABC á dögunum. „Þeir sögðu mér að setja hendurnar fyrir aftan bak,“ segir hún en samskipti hennar við lögreglu má sjá í myndbandi frá Daily Mail hér að neðan. Þar kemur fram að sonur hennar hefði ekki beðið um leyfi áður en hann yfirgaf heimilið og lögregla – og sennilega aðrir vegfarendur – hefðu haft áhyggjur af því að hann yrði fyrir bíl á leið sinni.
Brittany fékk sig lausa úr haldi gegn 500 dollara tryggingu og er óhætt að segja að mál hennar hafi vakið mikla athygli. Stofnuð var síða á söfnunarsíðunni GoFundMe og stendur söfnunin nú í 62 þúsund dollurum, um tíu milljónum króna.
Í frétt New York Post kemur fram að lögregla hafi boðið henni að ljúka málinu þannig að hún kæmi fyrir staðsetningarappi í síma sonar síns þannig að hún viti alltaf hvar hann er staddur. Það er eitthvað sem Brittany segist ekki kæra sig um að gera og gæti því farið svo að ákæran gegn henni standi.
Lögmaður hennar, David DeLugas, bendir á að það sé kaldhæðnislegt að hugsa til þess að atvikið hafi átt sér stað daginn fyrir hina vinsælu hrekkjavökuhátíð vestan hafs. Bendir hann á að þá gangi börn, oft mun yngri en Soren, um bæinn án foreldra sinna þegar kvölda tekur og bankar upp á hjá ókunnugu fólki. Þarna hafi Soren verið einn á ferli um hábjartan dag og gengið aðeins stutta vegalengd.
„Foreldrar eiga að stjórna því sjálfir hvort þeir vilji vefja börnunum sínum inn í bómull eða leyfi þeim að fá smá frelsi. Það á að vera ákvörðun okkar sem foreldra, en ekki ákvörðun stjórnvalda sem þekkja ekki aðstæður hjá fjölskyldum,“ segir Brittany.
@dailymail Horrifying bodycam footage shows the moment a Georgia mom was arrested for allowing her 10-year-old son to walk less than a mile into a small town. Brittany Patterson, 41, was captured on police bodycam footage being handcuffed and taken into custody on October 30 after she left her son, Soren, home alone. Police can be heard informing Patterson that she was being arrested for ‘child endangerment’ as she stood in the doorway of her family’s home. ‘And how was I recklessly endangering my child?’ she asked, before one of the officers gestured and told her to ‘turn around’. ‘We’re not talking about it,’ the officer added, before placing his hand on her arm, turning her around so she had her back to them, and putting her in handcuffs. The footage then shows Patterson being walked toward the police cars on her driveway and put into the back with her hands still in cuffs. Patterson was charged with reckless endangerment and taken into custody where she had her fingerprints and mugshot taken. #news #arrest #virall ♬ ■ News News-Drone-IT-AI(963995) – ImoKenpi-Dou