Rogan heldur úti vinsælasta hlaðvarpsþætti heims, The Joe Rogan Experience, en í umræddum þætti sagði hann bandarísk og úkraínsk yfirvöld vinna að því leynt og ljóst að koma af stað þriðju heimsstyrjöldinni. Er það einkum heimild sem Joe Biden Bandaríkjaforseti veitti Úkraínumönnum á dögunum til að nota bandarískar eldflaugar í Rússlandi sem Joe Rogan er logandi hræddur við.
„Selenskíj segir að Pútín sé skíthræddur. Fo**aðu þér, maður. Fo**ið ykkur. Þið eruð að fara koma þriðju heimsstyrjöldinni af stað,“ sagði Rogan og hraunaði svo yfir Joe Biden.
Í myndbandi sem Klitschko birti á Twitter segir hann að Rogan sé að dreifa áróðri frá Rússum.
„Þú talar um að verið sé að senda þessi bandarísku vopn til Úkraínu og það muni leiða til þriðju heimsstyrjaldarinnar. Þú ert að dreifa Rússaáróðri – Rússland Pútíns er í vanda. Þeir vilja hræða fólk eins og þig. Stríðið hans átti að taka þrjá daga en það hefur staðið yfir í þrjú ár, þökk sé fórnfýsi og hetjulegri baráttu Úkraínumanna.“
Bætti hann við að Rogan væri að nota eina vopnið sem Pútín raunverulega ætlar sér að nota: Áróður og það sé verkfæri sem getur grafið undan lýðræðinu.
Í lok myndbandsins bað Klitschko um að fá að mæta í þáttinn til hans til að útskýra málið betur. Joe Rogan hefur enn sem komið er ekki tjáð sig um málið.
. @joerogan , I disagree pic.twitter.com/tSGvwUnXOQ
— Klitschko (@Klitschko) November 24, 2024