Miðjumaðurinn Vicente Valor (1998) hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR.
Valor er fæddur á Spáni en hann kom til Íslands frá Bandaríkjunum fyrir síðasta tímabil. Valor spilaði 27 leiki fyrir ÍBV og skoraði 11 mörg á síðustu leiktíð.
Þá hefur Eiður Gauti Sæbjörnsson (1999) skrifað undir tveggja ára samning við KR.
Eiður er uppalinn í Kópavogi, spilaði lengst af með varaliði HK, Ými, en hann skipti í HK fyrir síðasta tímabil. Eiður hefur spilað 13 leiki fyrir HK og skorða í þeim 3 mörk.
Til gamans að geta er faðir Eiðs, Sæbjörn Guðmundsson, en hann lék 154 leiki í efstu deild fyrir KR og skoraði í þeim 20 mörk.