Barcelona hefur engan áhuga á að missa markavélina Robert Lewandowski á frjálsri sölu næsta sumar.
Börsungar eru að borga Lewandowski gríðarlega há laun í dag en um er að ræða 36 ára gamlan leikmann.
Þrátt fyrir háan aldur er Lewandowski mjög mikilvægur fyrir Barcelona og er markahæstur í La Liga.
Samningur Pólverjans rennur út næsta sumar en Barcelona ætlar að bjóða honum framlengingu til 2027.
Sport greinir frá þessum fréttum en möguleiki er á að Lewandowski einfaldlega endi feril sinn á Nou Camp.