Á föstudaginn kom fram í fréttum að flugskeytið hafi flogið á 11 földum hljóðhraða eða um þrjá kílómetra á sekúndu. Það þýðir auðvitað að það er gríðarlega erfitt að skjóta slíkt flugskeyti niður. Yfirmaður leyniþjónustu úkraínska hersins sagði síðan á föstudaginn að Rússar hefðu aðeins smíðað tvö svona flugskeyti og því hafi þeir nú notað helminginn.
Þessi flugskeyti geta borið kjarnorkuvopn en svo var ekki í síðustu viku, það var búið hefðbundnum sprengibúnaði.
Hann sagði að notkun flugskeytisins hafi verið svar Rússar við ákvörðun Breta og Bandaríkjamanna um að leyfa Úkraínumönnum að nota bresk og bandarísk vopn til árása á rússneskt landsvæði. Pútín hafði eins og áður óbeint í hótunum við Vesturlönd að beita kjarnorkuvopnum þegar hann sagði að Rússar hafi fullan rétt á að beita vopnum sínum gegn hernaðarmannvirkjum í þeim löndum sem heimila Úkraínumönnum að beita vopnum sínum á rússnesku landsvæði.
Allt þetta þýðir að Vesturlönd verða að taka afgerandi ákvörðun að mati André Ken Jakobsson, sem er sérfræðingur í deilum stórvelda við Center for War Studies við Syddansk háskólann í Danmörku.
Í samtali við Jótlandspóstinn sagði hann að Vesturlönd verði að losa sig undan þessari kjarnorkuvopnaógn. „Við verðum að hætta að hræðast þetta og við eigum ekki að hræða okkur sjálf með að hann muni beita kjarnorkuvopnum. Það þjónar ekki hagsmunum Rússlands að gera það. Þess utan má færa rök fyrir að engum öðrum ríkjum finnist það góð hugmynd, þar á meðal Kína,“ sagði hann.
„Við höfum allan tímann verið með þessa kjarnorkuvopnaógn í höfðinu. Það hefur orðið til þess að Vesturlönd hafa sett sig sjálf í spennitreyju og hafa haldið aftur af hvaða vopn þau hafa látið Úkraínu í té,“ sagði hann og bætti við að staðan væri undarleg því Vesturlönd hafi ítrekað farið yfir hinar rauðu línur Pútíns og látið Úkraínumenn fá öflugri vopn.
„Á sinn hátt verða kjarnorkuvopnahótanir hans sífellt veikari eftir því sem við förum oftar yfir hinar svokölluðu rauðu línur. Við hefðum bara getað gert þetta fyrir löngu og þá væri staðan önnur en hún er í dag,“ sagði hann einnig.