Birkir Valur Jónsson og Bragi Karl Bjarkason eru gengnir til liðs við FH en þetta var staðfest í kvöld.
Um er að ræða öfluga leikmenn en Bragi Karl kemur til FH frá ÍR þar sem hann hefur leikið frá 2022.
Bragi var afskaplega mikilvægur leikmaður fyrir lið ÍR í sumar og skoraði tíu mörk í Lengjudeildinni.
Birkir Valur er 26 ára gamall og kemur til félagsins frá HK en hann hefur leikið þar allan sinn feril.
Bragi skrifar undir samning til ársins 2027 og Birkir út árið 2026.