DV greindi frá máli þeirra síðastliðinn mánudag en þá kom fram að þær væru þungt haldnar á sjúkrahúsi í kjölfar eitrunar.
Sjá einnig: Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn
Stúlkurnar, Bianca Jones og Holly Bowles, sem báðar voru 19 ára, útskrifuðust frá Beaumaris-menntaskólanum í Melbourne í fyrra og héldu þær í einskonar útskriftarferð fyrir skemmstu þar sem þær héldu meðal annars til Taílands og Laos. Voru þær staddar í bænum Vang Vieng, sem er vinsæll meðal ungra ferðamanna, þegar þær veiktust.
Metanól er einnig þekkt sem tréspíri eða viðarspíri og geta afleiðingarnar af neyslu þess verið mjög varasamar. Við niðurbrot metanóls í lifrinni myndast svokölluð maurasýra sem getur valdið hættulegri eitrun.
Bianca lést á sjúkrahúsi í gær og í morgun tilkynntu aðstandendur Holly að hún væri einnig látin.
Bianca og Holly eru ekki þær einu sem látist hafa í Vang Vieng að undanförnu eftir neyslu á eitruðu áfengi, en alls hafa sex látist síðustu daga og vikur. Í þeim hópi er 28 ára breskur lögfræðingur, Simone White.
Í frétt News.com.au kemur fram að neysla á 25 til 90 millílítrum af metanóli geti verið banvæn. Einkenni eitrunar eru meðal annars kviðverkir, ógleði, uppköst, öndunarerfiðleikar, blinda og flog.